"Ég var búinn að reyna að fá nálgunarbann“ Ellý Ármanns skrifar 11. júlí 2014 14:30 „
Ég var búinn að reyna að fá nálgunarbann því ég vissi að þetta yrði rosalegt,“ segir Arnar Grant einkaþjálfari þegar við spyrjum hann út í daginn þegar hann var steggjaður en Arnar gengur að eiga sína heittelskuðu Kristínu Hrönn Guðmundsdóttur í sumar. „Þetta voru alls 25 vinir mínir sem mættu í rútu til að eyða þessum erfiða en jafnframt frábæra degi með mér,“ segir hann og lýsir fyrir okkur deginum sem var vægast sagt svakalegur. Hreggviður, Þórður Már, Baldur Rafn og Arnar Grant og Ívar Guðmundsson.Það leit ekki vel út „Ég var látinn kenna spinningtíma í World Class í bleikum spandex-galla með skærbleikt hárið en ég var blettaður með brúnkukremi. Það leit ekki vel út,“ segir Arnar og heldur áfram frásögninni.Logi lét Arnar syngja fyrir túristana „Svo var mér stjórnað í miðbæ Reykjavíkur af Loga Bergmann. Ég var látinn syngja og tralla fyrir útlendinga og aðra sem áttu leið hjá. Þá var ég klæddur í hvítan frakka og hvíta leðurskó.“Hélt að hann myndi deyja „Í Mjölni var það bardagaglíma. Þetta voru sex lotur og ég er feginn að hafa lifað það af. Svo fór ég á thunderball bát í 30 mínútur á ævintýralegum hraða. Þarna hélt ég að ég myndi deyja og hélt mér dauða haldi í bátinn.“ Í upptökuver með félögunum „Ég söng lag í studíói með nokkrum snillingum, Steinda, Gillz og Audda Blö, en tónlistarmyndband sem var tekið upp á nokkrum stöðum. Það verður svo sýnt í veislunni."Enduðu á sveitaballi„Síðan borðuðum við besta mat sem ég hef fengið á ævinni frá Kokkunum veisluþjónustu. Eftir það var ég settur í hraðbát á Þingvallarvatni. Þar var ég settur í gúmmíhring og dreginn á ofsa hraða um vatnið. Á endanum hentist ég af með látum. Svo fóru þeir með mig á sveitaball úti á landi. Rútan keyrði mig heim síðastan klukkan sex um um morguninn,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Lífið Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Lífið Fleiri fréttir Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Sjá meira