Gengi krónu þyrfti að lækka ef ekki er lengt í Landsbankabréfi Þorbjörn Þórðarson skrifar 8. október 2014 22:48
Seðlabankinn segir að það gæti þurft að fella gengi krónunnar um 8 prósent og það er högg sem almenningur tekur, ef ekki tekst að lengja í skuldabréfum Landsbankans við slitabú þess gamla. Ástæðan er sú að skapa þarf undirliggjandi afgang í gjaldeyri til að mæta afborgunum. Skuldabréf Landsbankans við slitabú þess gamla, LBI, hljóða upp á jafnvirði 226 milljarða króna í erlendum gjaldeyri. Eins og komið hefur ítrekað fram í fréttum náðust samningar á afborgunum bréfsins þannig að síðasti gjalddagi skuldabréfanna er árið 2026 í stað ársins 2018. Samningarnir eru háðir því að LBI fái undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Samningarnir eru hins vegar umdeildir í íslensku samfélagi. Þannig eru skiptar skoðanir hjá stjórnvöldum hvort það eigi yfirleitt að veita slitabúi Landsbankans undanþágu frá höftum. Þessar efasemdir koma t.d fram hjá stýrihópi um afnám fjármagnshafta. Seðlabankinn er að undirbúa svar til LBI vegna undanþágunnar en samkvæmt lögum um gjaldeyrismál þurfa bæði Seðlabankinn og fjármála- og efnahagsráðherra að veita samþykki fyrir undanþágu af þessu tagi. Nokkrir hafa stigið fram og lýst því yfir að hafna beri þessum samningi til dæmis Heiðar Guðjónsson hagfræðingur.Gengi krónu þyrfti að lækka Í Fjármálastöðugleika Seðlabankans sem kom út í dag segir orðrétt: „Verði ekki af lengingu skuldabréfa Landsbankans þyrfti, að öðrum forsendum óbreyttum, innlend eftirspurn að dragast saman og gengi krónunnar að lækka til að þjóðarbúið geti skapað meiri gjaldeyristekjur til að standa undir greiðslum af skuldabréfunum.“ Greining með þjóðhagslíkani Seðlabankans bendir til að gengið gæti þurft að lækka tímabundið um 8%.Mun ekki almenningur á endanum borga fyrir þessa gengisfellingu? „Þetta er sú mynd sem við höfum dregið upp. Það er ákveðinn munur á væntum viðskiptaafgangi og því sem við þurfum að borga í erlendar skuldir. Til þess að loka þessum mun, samvæmt þessu mati sem grundvallast á líkani Seðlabankans, þá mun gengið þurfa að lækka um allt að 8 prósent til skamms tíma og einkaneysla minnka og verðbólga mun aukast. Á hinn bóginn hefur LBI lagt samkomulag á borðið sem er raunhæft hvað varðar endurfjármögnun Landsbankans sem þýðir að þetta högg myndi ekki lengur koma fram, en að sama skapi gæti ríkið eða Seðlabankinn lánað þessa fjármuni til lengri tíma og komið í veg fyrir að þetta högg komi fram,“ segir Sigríður Benediktsdóttir framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabankanum. Sigríður segir að ef það verði lengt í bréfunum sé mjög ólíklegt að það komi fram sömu áhrifin þar sem líkurnar á endurfjármögnun án aðkomu ríkisvaldsins aukist verulega.
Mest lesið Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Sjá meira