Höfðar nýtt mál gegn Seðlabanka og fer fram á 1,9 milljarða Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. desember 2014 11:18 Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur og fjárfestir er eini eigandi Ursusar ehf.
Ursus ehf., félag Heiðars Más Guðjónssonar, hefur höfðað nýtt mál á hendur Seðlabankanum og Eignasafni Seðlabankans (ESÍ) vegna söluferlisins á Sjóvá og fer fram á 1,9 milljarða króna í skaðabætur. Fyrra mál hefur verið fellt niður en í því máli var gerð talsvert lægri skaðabótakrafa eða 1,4 milljarðar króna. Heiðar er eini eigandi Ursusar ehf. með 100% hlutafjár. Stefnan er byggð á því að bindandi samkomulag hafi tekist milli félags Heiðars og Seðlabankans og ESÍ hinn 10. júlí 2010 um kaup á tilteknum hlutabréfum í Sjóvá auk réttar til kaupa á frekari hlutum á fyrirfram ákveðnu gengi en Seðlabankinn og ESÍ hafi með saknæmum hætti sammælst um að ljúka ekki viðskiptunum eins og samið var um. Sjóvá var í opnu söluferli á þessum tíma eftir að hafa runnið í faðm ríkisins eftir hrunið. Ríkissjóður þurfti að leggja því til fjármuni til að tryggja rekstur þess og leysti til sín félagið samhliða því. Rann það í kjölfarið inn í ESÍ. Félag Heiðars gerir kröfu um að það verði eins sett og ef viðskiptin hefðu átt sér stað en virði Sjóvár hefur aukist verulega eftir að það var selt og hefur félag Heiðars farið á mis við verulegan hagnað sem nú er krafist bóta fyrir. Byggja á því að Heiðar hafi sjálfur fallið frá kaupunum Í fyrra máli, sem fellt hefur verið niður, byggði Seðlabankinn á því að Heiðar hefði sjálfur fallið frá söluferlinu eftir að það dróst á langinn í kjölfar rannsóknar gjaldeyriseftirlits Seðlabankans á meintum ólöglegum viðskiptum Ursusar ehf. með aflandskrónur, í þessu tilviki íslenskar krónur á reikningum erlendra aðila á Íslandi. Millifærsla á íslenskum krónum milli reiknings í eigu erlends fjármálafyrirtækis og reiknings viðskiptavinar hjá fjármálafyrirtæki hér á landi, innlendum sem erlendum aðila, telst til fjármagnshreyfingar á milli landa og því óheimil. Ursus nýtti sér ívilnun sem veitt hafði verið erlendum fjármálafyrirtækjum til að kaupa fjármálagerning (t.d. skuldabréf) í íslenskum krónum og greiða fyrir af svokölluðum Vostro-reikningi kaupandans, þ.e. hins erlenda fjármálafyrirtækis. Málið var rannsakað af gjaldeyriseftirlitinu og vísað áfram til efnahagsbrotadeildar RLS en fellt niður af ríkissaksóknara hinn 27. febrúar 2012. Í greinargerð Seðlabankans vegna fyrri málshöfðunar kemur fram að rannsókn gjaldeyriseftirlitsins á meintum ólöglegum viðskiptum með aflandskrónur hefði ekki haft nein áhrif á söluferli Sjóvár þar sem fjárfestahópurinn, með Heiðar í fararbroddi, hefði áður sagt sig frá söluferlinu og þar af leiðandi hugsanlegum kaupum á Sjóvá. Félag Heiðars byggir hins vegar á því að kominn hafi verið á bindandi samningur milli aðila hinn 10. júlí 2010, eins og áður segir. Ítarlegir skilmálar í samkomulagi um kaup Í nýrri stefnu eru raktir ítarlegir skilmálar samkomulagsins frá 10. júlí og að ekkert hafi staðið því í vegi að ljúka viðskiptunum á grundvelli þeirra og þá bendi ekkert til annars en að FME hefði samþykkt viðskiptin fyrir sitt leyti. Í fyrsta lagi hafi félag Heiðars eitt og sér ekki verið að eignast virkan eignarhlut í Sjóvá, heldur með hópi annarra og auk þess sé hann vel hæfur til eignarhaldsins í skilningi þeirra skilyrða sem koma fram í lögum um fjármálafyrirtæki. Þá hafi enginn fyrirvari verið í samþykktum skilmálum um stöðu eftirlitsmála hjá Seðlabankanum vegna málsins sem síðar var fellt niður. Hinn 22. nóvember 2010 kvartaði Heiðar til umboðsmanns Alþingis vegna málsmeðferðar Seðlabankans og ESÍ við söluna á Sjóvá. Umboðsmaður hefur enn ekki skilað áliti í málinu, nú rúmum fjórum árum síðar.
Mest lesið Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira