HS Orka og Jarðboranir hafa undirritað verksamning vegna gufuöflunar Stefán Árni Pálsson skrifar 18. desember 2014 16:43 Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Jarðborana, og Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku. myndir/aðsendar
HS Orka hf. og Jarðboranir hf. hafa undirritað verksamning um boranir vegna gufuöflunar fyrir jarðvarmavirkjanir HS Orku á Reykjanesi. Samningurinn tekur til borunar á þremur borholum með möguleika á fimm holum til viðbótar. Að undangenginni verðkönnun sem HS Orka réðst í reyndist tilboð Jarðborana hagstæðast, því var ákveðið að ganga til samninga við fyrirtækið um verkið. Fram kemur í tilkynningu frá HS Orku að það sé sérstaklega ánægjulegt við samstarfið að borinn Þór sem notaður verður við borverkefnið sé alfarið knúinn með raforku sem framleidd er á vistvænan hátt í orkuverum HS Orku. „Við þetta sparast vel á annað hundrað þúsund lítrar af jarðefnaeldsneyti á hverja borholu, sem er gríðarlega mikilvægt í umhverfislegu og efnahagslegu tilliti,“ segir í tilkynningunni. Framkvæmdir við verkið munu hefjast nú í desember. „Með þessu verkefni er markað mikilvægt skref í framtíðarrekstri orkuveranna og annarra fyrirtækja í Auðlindagarðinum í Svartsengi og á Reykjanesi, með sína fjölþættu starfsemi við margháttaða nýtingu jarðvarmaauðlindarinnar,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku. „Jarðboranir eru afar ánægðar með að HS Orka hafi gengið að tilboði okkar um boranir á Reykjanesi. Félögin hafa átt í áratugalöngu samstarfi og verðmæt verkþekking orðið til hjá báðum félögum sem nú er hægt að halda áfram að byggja upp. Við erum stolt að geta boðið félaginu rafmagnsborinn Þór sem fellur óneitanleg vel að hugmyndafræði HS Orku og Auðlindagarðsins um alhliða nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Jarðborana.
Mest lesið Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Samstarf Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent