Meðalforgjöfin er 2,6 á Nettómótinu 23. maí 2014 18:45 Haraldur Franklín Magnús. mynd/gsí
Eimskipsmótaröðin í golfi hefst á morgun og alls eru 67 karlar og 17 konur skráðir til leiks Nettómótið sem fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Haraldur Franklín Magnús GR er með lægstu forgjöfina á mótinu eða -2,4 en hann fer út í fyrsta ráshópnum í fyrramálið kl. 7.00. Ragnar Már Garðarsson úr GKG og Gísli Sveinbergsson úr GK eru með Haraldi í fyrsta ráshóp. Í kvennaflokknum er Sunna Víðisdóttir úr GR með lægstu forgjöfina eða -1,6. Fyrsti ráshópurinn í kvennaflokknum fer einnig út kl. 7.00 á Hólmsvelli í Leiru en ræst er út á 1. og 10. teig. Leiknar verða 36 holur á morgun, laugardag, og 18 á sunnudag. Líkt og áður verður skor keppenda uppfært á þriggja holu fresti á öllum mótum sumarsins á Eimskipsmótaröðinni. Meðalforgjöfin í karlaflokknum er 2,3 en 3,9 í kvennaflokknum og samtals er meðalforgjöf keppenda 2,6. Ef miðað er við tvö síðustu ár þá var meðalforgjöfin á fyrsta mótinu á Eimskipsmótaröðinni árið 2012 3,1 og árið 2013 var meðaforgjöfin 3,0. Alls eru tíu kylfingar í karlaflokki með forgjöf undir 0. Þeir eru; Haraldur Franklín Magnús, GR (-2,4), Andri Þór Björnsson, GR (-1,9), Ragnar Már Garðarsson, GKG (-1,7), Kristján Þór Einarsson GKj., (-1,4), Gísli Sveinbergsson, GK (-1,2), Rúnar Arnórsson, GK (-1,0), Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG (-0,6), Bjarki Pétursson, GB (-0,3), Örvar Samúelsson , GA (-0,2), Arnar Snær Hákonarson, GR (-0,1). Eins og áður segir er Sunna Víðisdóttir úr GR forgjafarlægst í kvennaflokknum með -1,6, Berglind Björnsdóttir, GR kemur þar næst með (0,1), Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (0,2), Karen Guðnadóttir, GS (0,6), Signý Arnórsdóttir, GK (1,2) og Anna Sólveig Snorradóttir, GK (1,7).
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira