Aðfluttir dragi úr launaskriði Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 14. maí 2014 10:15 Síðasta ár var hið fyrsta síðan 2008 þar sem fjöldi aðfluttra var meiri en brottfluttra. Fréttablaðið/Vilhelm
Þegar framleiðsluslakinn hverfur úr hagkerfinu í lok þessa árs eða í byrjun næsta er hætta á að launaþrýstingur skapist á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í Markaðspunktum Arion banka sem birtir voru í gær. Þar segir að til viðbótar við launaskrið á vinnumarkaði sé mikilvægt að kjarasamningar þróist með þeim hætti að launahækkanir verði hóflegar. Að öðrum kosti sé hætta á að Seðlabankinn neyðist að grípa til aðhaldsaðgerða til að vega á móti þeirri þróun í lok þessa árs. Á sama hátt minnka líkur á gerð langtímakjarasamninga í byrjun næsta árs líkt og stefnt hefur verið að. „Árið 2013 var fyrsta árið síðan 2008 þar sem fjöldi aðfluttra var umfram brottflutta. Fjöldinn var um 1.600 manns og á sama tíma fór skráð atvinnuleysi undir jafnvægisatvinnuleysi. Það er því ljóst að staðan á vinnumarkaði ræður miklu um flutning vinnuafls til og frá landinu og má leiða líkur að því að innflutningur vinnuafls geti haft jákvæð áhrif og dregið úr líkum á of miklu launaskriði þegar atvinnuleysi fer lækkandi,“ segir í Markaðspunktunum. Telur greiningardeild Arion banka að ef atvinnuleysi fer áfram lækkandi og umframeftirspurn myndast á vinnumarkaði í einstaka geirum geti aðflutta vinnuaflið dregið úr þeim launaþrýstingi sem annars kunni að myndast.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira