Viðskipti innlent

Aðfluttir dragi úr launaskriði

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Síðasta ár var hið fyrsta síðan 2008 þar sem fjöldi aðfluttra var meiri en brottfluttra.
Síðasta ár var hið fyrsta síðan 2008 þar sem fjöldi aðfluttra var meiri en brottfluttra. Fréttablaðið/Vilhelm
Þegar framleiðsluslakinn hverfur úr hagkerfinu í lok þessa árs eða í byrjun næsta er hætta á að launaþrýstingur skapist á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í Markaðspunktum Arion banka sem birtir voru í gær.

Þar segir að til viðbótar við launaskrið á vinnumarkaði sé mikilvægt að kjarasamningar þróist með þeim hætti að launahækkanir verði hóflegar. Að öðrum kosti sé hætta á að Seðlabankinn neyðist að grípa til aðhaldsaðgerða til að vega á móti þeirri þróun í lok þessa árs. Á sama hátt minnka líkur á gerð langtímakjarasamninga í byrjun næsta árs líkt og stefnt hefur verið að.

„Árið 2013 var fyrsta árið síðan 2008 þar sem fjöldi aðfluttra var umfram brottflutta. Fjöldinn var um 1.600 manns og á sama tíma fór skráð atvinnuleysi undir jafnvægisatvinnuleysi. Það er því ljóst að staðan á vinnumarkaði ræður miklu um flutning vinnuafls til og frá landinu og má leiða líkur að því að innflutningur vinnuafls geti haft jákvæð áhrif og dregið úr líkum á of miklu launaskriði þegar atvinnuleysi fer lækkandi,“ segir í Markaðspunktunum.

Telur greiningardeild Arion banka að ef atvinnuleysi fer áfram lækkandi og umframeftirspurn myndast á vinnumarkaði í einstaka geirum geti aðflutta vinnuaflið dregið úr þeim launaþrýstingi sem annars kunni að myndast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×