Eiginmaður ráðherra leitar lögfræðings Snærós Sindradóttir skrifar 5. mars 2014 14:22 Eiginmaður Eyglóar Harðardóttur, ráðherra, er ósáttur við hve lengi Landsbankinn hefur verið að endurreikna ólögleg lán VÍSIR
Sigurður E. Vilhelmsson, eiginmaður Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra, stendur í stappi við Landsbankann þessi misserin vegna endurreiknings á ólöglegum lánum sem hann tók. Hann vandar bankanum ekki kveðjurnar og segir að um skítabúllu sé að ræða.„Þetta snýst ekki um krónur og aura, þetta snýst bara um prinsippið“Sigurður segir að 18 mánuðir séu síðan hann fór fyrst fram á að Landsbankinn endurreiknaði ólöglega lánið hans og endurgreiddi það sem hann ætti inni hjá bankanum „Það tók þá ekki langan tíma að reikna það út þegar þeir töldu sig eiga inni hjá mér en þetta hefur tekið alveg ótrúlega langan tíma.“Hæstiréttur hefur úrskurðað um ólögmæti gengistryggðra lánaVÍSIR/GVA„Bankinn gaf það út fyrir tæpu ári síðan að megnið af lánunum yrði reiknað síðasta sumar. Eitthvað gæti dregist fram á haustið. Fyrir haust var það gefið út að það yrði reynt að klára allt fyrir jól og fyrir jól var mér sagt að þetta gæti dregist fram að áramótum. Síðustu svör sem ég fæ frá þeim gera ráð fyrir að klára endurreikning á fyrri hluta þessa árs og ef það dragist fram yfir júní þurfi ég ekki að hafa áhyggjur af fyrningunni.“Fyrning hefst á næstu mánuðum„Það er staðreynd að þessar kröfur byrja að fyrnast núna í sumar og ef það eina sem ég hef í höndunum er tölvupóstur frá þjónustufulltrúa í Landsbankanum um að það muni ekki hafa áhrif þá veit ég ekki hvað gerist ef þeir færu í hart miðað við hörkuna sem þeir hafa sýnt í þeim dómsmálum sem þeir hafa staðið í.“ Aðspurður hvort Sigurður hyggist fara í mál við bankann vegna þess hve lengi hefur dregist að endurreikna lánið segir hann „Fyrstu skref eru að skipta um viðskiptabanka og svo sé ég bara til hvernig þetta vinnst hjá þeim. Ég er allavega farinn að líta í kringum mig eftir innheimtulögfræðingi."
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent