Seung-Yul Noh leiðir fyrir lokahringinn á Zurich Classic 27. apríl 2014 12:57 Seung-Yul Noh á þriðja hring í gær. AP/Vísir
Suður-Kóreumaðurinn Seung-Yul Noh leiðir Zurich Classic fyrir lokahringinn sem fram fer í kvöld en hann er samtals á 18 höggum undir pari eftir fyrstu þrjá hringina. Noh hefur leikið á alls oddi á TPC Louisiana vellinum hingað til en hann lék þriðja hringinn á 65 höggum án þess að fá einn einasta skolla. Það eru þó margir sterkir kylfingar sem eiga eftir að sækja á Noh á lokahringnum í kvöld en í öðru sæti er fyrrum PGA-meistarinn Keegan Bradley á 16 höggum undir pari. Robert Streb er í þriðja sæti á 15 höggum undir pari en margir kylfingar koma þar á eftir á 14 og 13 höggum undir pari sem gætu blandað sér í toppbaráttuna með góðum lokahring. Síðasti dagur Zurich Classic verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 í dag. Það er þó ekki eina mótið sem verður í beinni útsendingu í kvöld því klukkan 23:00 verður skipt yfir til Kaliforníu þar sem lokahringur Swinging Skirts kvennamótsins fer fram en það er hluti af LPGA mótaröðinni.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira