Sjötíu og einn vildi framkvæmdastjórastarf Haraldur Guðmundsson skrifar 31. desember 2014 13:00 Strætó bs. er í eigu sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. vísir/vilhelm
Strætó bs. barst 71 umsókn í starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins en umsóknarfrestur rann út 15. desember síðastliðinn. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar Strætó frá 19. desember. „Ráðgjafar Capacent munu nú fara yfir umsóknir og meta þær eftir fyrirframgefnum matsramma,“ segir í fundargerðinni. Stjórn Strætó komst í nóvember að samkomulagi við Reyni Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, um að hann léti af störfum. Í tölvupósti sem stjórnin sendi starfsmönnum Strætó mánudaginn 24. nóvember kom fram að það væri sameiginlegt mat beggja aðila að ekki væri lengur traust milli stjórnar fyrirtækisins og framkvæmdastjórans. Fjölmiðlar höfðu þá greint frá kaupum fyrirtækisins á tíu milljóna króna Mercedes Benz-jeppa sem Reynir hafði til umráða. Reynir tók sjálfur ákvörðun um að kaupa jeppann og bar hana hvorki undir stjórn né stjórnarformann. Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarformaður Strætó, sagði í kjölfarið að rekstrarúttekt yrði gerð á starfsemi Strætó. Í áðurnefndri fundargerð samþykkir stjórnin tillögu stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um að unnin verði ítarleg greining á rekstri byggðasamlaganna þriggja; Strætó, Sorpu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Stýrihópur um verkefnið á að skila niðurstöðum eigi síðar en í lok apríl 2015.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira