Hundruð milljóna fyrir mæla Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. desember 2014 07:15 Bjarni Bjarnason segir enn eftir að ákveða á hvaða verði mælarnir verða keyptir. fréttablaðið/Anton Brink
Orkuveita Reykjavíkur ætlar að taka á ný við mælum fyrir rafmagn og heitt og kalt vatn hjá viðskiptavinum á þjónustusvæði sínu. Samningur sem gerður hafði verið við Frumherja um slíka þjónustu rennur út 31. maí. Frumherji á mælana núna og Orkuveitan mun kaupa hluta þeirra af fyrirtækinu. Á þessari stundu liggur kaupverðið ekki fyrir. „Mælasafnið í heild kostar nokkur hundruð milljónir en hvernig við færum það yfir er bara ekki vitað enn þá,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR. Enn sé verið að semja um það. Orkuveitan og forverar hennar sáu um mælana til 2001 þegar Frumherji hf. keypti þá í kjölfar útboðs og leigði Orkuveitunni til afnota. Frumherji hefur síðan átt og rekið mælana. Núgildandi þjónustusamningur Orkuveitunnar og Frumherja er frá 2008. Hann rann út í maí 2014 og var þá framlengdur til eins árs eða út maí 2015. Ekki eru frekari möguleikar á framlengingu í samningnum. Eignarhald mæla flyst því til Orkuveitunnar, þjónusta verður boðin út að einhverju leyti og eftirlit með mælum verður í höndum óháðs aðila. Verð á rafmagni og vatni á ekki að breytast vegna þessa.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira