Raftækjum og húsgögnum mokað út í nóvember Óli Kristján Ármannsson skrifar 12. desember 2014 07:00 Sala á húsgögnum og raftækjum hefur tekið stökk frá því í fyrra. Fréttablaðið/Anton
Jólaverslun er almennt sögð hafa farið vel af stað í nóvember og líklegt talið að töluvert sé um að heimilin endurnýi hjá sér raftæki og húsgögn. Rannsóknasetur verslunarinnar spáir um fjögurra prósenta raunvexti í verslun fyrir þessi jól. Veruleg aukning varð í nóvember í sölu á varanlegum neysluvörum á borð við stór raftæki og húsgögn, að því er fram kemur í nýrri samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst. „Sala á snjallsímum jókst um 168,8 prósent á föstu verðlagi í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra sem er fyrst og fremst vegna þess að hafin var sala á nýrri útgáfu snjallsíma í byrjun mánaðarins,“ segir í umfjöllun RSV. Sala húsgagna jókst um 26,6 prósent og þar af jókst sala á rúmum um 45,7 prósent. „Velta í sölu á stórum raftækjum eins og þvottavélum og ísskápum, svokölluðum hvítvörum, jókst um 30,4 prósent og sala á minni raftækjum, sjónvörpum og hljómflutningstækjum um 22,1 prósent.“ Velta í dagvöruverslun jókst lítillega í nóvember og samdráttur varð í sölu áfengis miðað við sama mánuð í fyrra. Þó er tekið fram að í fyrra voru fimm föstudagar í nóvember en nú voru þeir fjórir. „Föstudagar eru söluhæstu dagarnir í þessum vöruflokkum.“ Þegar leiðrétt hefur verið fyrir þessum dagamun kemur í ljós að velta dagvöru jókst um 2,2 prósent og áfengis um 3,8 prósent.
Mest lesið Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Smíðar sjókvíar og báta á Djúpavogi fyrir fiskeldi Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira