Kísilverið getur tafist um ár en Húsvíkingar anda rólega Haraldur Guðmundsson skrifar 12. desember 2014 07:00 ESA samþykkti í mars síðastliðnum ríkisaðstoð sem Norðurþing og ríkið veittu PCC í formi skattaívilnana og framkvæmdastyrks.
Rannsókn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á því hvort orkusamningar vegna fyrirhugaðs kísilvers PCC á Bakka við Húsavík feli í sér óheimila ríkisaðstoð getur tekið allt að tólf mánuði. Sveitarstjóri Norðurþings segir heimamenn anda rólega þrátt fyrir að þeir hafi beðið í um áratug eftir iðnaðaruppbyggingu á svæðinu. „Á meðan þessi óvissa ríkir anda menn rólega en auðvitað hefur þetta gríðarlega mikið um það að segja hvernig við náum að spila úr okkar málum og þróa okkar samfélag áfram. Við treystum því á að menn leysi þetta,“ segir Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings.Kristján Þór MagnússonESA tilkynnti á miðvikudag að stofnunin hefði efasemdir um að væntar tekjur af orkusölu Landsvirkjunar til þýska fyrirtækisins væru nægar miðað við áætlaðan kostnað við byggingu og rekstur Þeistareykjavirkjunar. Einnig telur ESA óljóst hvort nærri fimm milljarða króna fjárfesting, sem nauðsynleg er til að tengja verksmiðju PCC og virkjunina við flutningskerfi Landsnets, kunni að fela í sér ívilnun til þýska fyrirtækisins sem yrði þá fjármögnuð með auknum kostnaði notenda sem fyrir eru. „Ég veit ekkert hvort né með hvaða hætti þetta mun hafa áhrif á framgang verkefnisins. Þetta er fyrst og síðast mál á milli Landsvirkjunar og PCC sem þau þurfa að leysa. Við erum að vinna eftir okkar tímalínum og þetta hefur sannarlega engin áhrif á fyrri úrskurði ESA sem snúa að þeim samningum sem Norðurþing og ríkið gerðu við PCC,“ segir Kristján. Forsvarsmenn PCC komu hingað til lands í síðustu viku og tilkynntu þá að lokaákvörðun um byggingu kísilversins yrði ekki tekin á þessu ári eins og til stóð. Sögðust þeir vona að ákvörðun gæti legið fyrir fljótlega eftir áramót þegar fjármögnun verkefnisins yrði komin á hreint. Kristján segir aðspurður að sveitarfélagið ætli ekki að hefja jarðvegsframkvæmdir á Bakka fyrr en ákvörðun PCC liggur fyrir. „Ég reikna ekki með því. Ég held að ef að menn rýna í það sem hefur gerst í Helguvík þá ætti það að vera víti til varnaðar,“ segir Kristján og vísar til ákvörðunar bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ um að hefja undirbúning komu kísilvera í Helguvík áður en öll verkefnin eru í hendi. Kristján bendir einnig á að Norðurþing hefur átt í samskiptum við önnur fyrirtæki sem hafa sýnt Bakka áhuga. Eitt þeirra er félagið Klappir Development sem hefur kynnt áform um byggingu 120 þúsund tonna álvers á svæðinu fyrir bæjaryfirvöldum. „PCC hefur sýnt það í verki að fyrirtækið vill vera fyrst inn á svæðið og á meðan hafa viðræður við aðra ekki staðið yfir. Ég held því að allir séu sammála um að þessi rannsókn megi ekki taka allt að ár ef það er mögulega hægt að komast hjá því.“Býst ekki við athugasemdum frá ESA Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon, segist ekki eiga von á athugasemdum frá ESA vegna raforkusamnings fyrirtækisins við Landsvirkjun vegna kísilversins sem United ætlar að reisa í Helguvík. „Við höfum hlerað hvort þetta sé eitthvert vandamál en svo er ekki því við erum að kaupa raforku sem er til og það er ekki verið að byggja nýja virkjun fyrir okkur. Því er ekki verið að bera virkjunarkostnað saman við það sem við erum að kaupa. Svo er ég viss um að við borgum hærra raforkuverð en álverin, samkvæmt meðalverði sem birt er í ársskýrslu Landsvirkjunar, og því get ég ekki séð að okkar samningur geti innihaldið einhvers konar ríkisstyrk,“ segir Magnús. Byggingarfulltrúi Reykjanesbæjar samþykkti byggingarleyfi United Silicon í síðustu viku. Búið er að hanna verksmiðjuna og jarðvegsframkvæmdum á lóð fyrirtækisins er lokið. „Nú er að hefjast steypuvinna og verkið er því á áætlun,“ segir Magnús.
Mest lesið Nýr kokteilbar opnar á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga standi í stað í júlí en aukist í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnar á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Sjá meira
Nýr kokteilbar opnar á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnar á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent