Ekkert upp í 46,5 milljarða Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. desember 2014 07:00 Hannes Smárason. Á fundi FL Group 2007 Í árslok 2007 voru dótturfélög FI fjárfestinga ehf., eignarhaldsfélögin Sveipur ehf. og Oddaflug ehf. (sem hélt utan um eignarhlutinn í FL Group), Fjölnisvegur 9 ehf., Hlíðasmári 6 ehf. og 3S ehf. Fréttablaðið/Heiða
Lýstar kröfur í þrotabú FI fjárfestinga ehf., eignarhaldsfélags Hannesar Smárasonar, námu rúmlega 46,4 milljörðum króna, auk tæplega 486,6 þúsunda punda, eða um 46,5 milljörðum króna alls. „Engar eignir fundust í búinu og var skiptum á því lokið 26. nóvember 2014 samkvæmt 155. grein laga númer 21/1991 án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, auk áfallinna vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta,“ segir í tilkynningu um skiptalokin í Lögbirtingablaðinu í gær. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta, eftir beiðni skilanefndar Glitnis, um miðjan desember 2011. Gjaldþrot FI fjárfestinga er með stærstu gjaldþrotum félaga hér á landi eftir hrun, en til samanburðar má nefna að kröfur í þrotabú Samsonar, eignarhaldsfélags Björgólfsfeðga sem hélt á hlut þeirra í Landsbankanum, námu um 80 milljörðum króna. Samkvæmt síðasta ársreikningi FI fjárfestinga, sem áður nefndist Fjárfestingafélagið Primus ehf., fyrir árið 2007 námu skuldir þess í lok ársins rúmum 35 milljörðum króna. Eigið fé var neikvætt um tæpa 3,7 milljarða króna. Fram kom í ársreikningnum að eignarhlutir í öðrum félögum að verðmæti tæplega 23,9 milljarðar króna hafi verið veðsettir fyrir skuldum félagsins. Magnús Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og skiptastjóri FI fjárfestinga, segir allar eignir hafa verið færðar út úr félaginu fyrir árið 2007. „Félagið hafði ekki verið í rekstri árin áður en það fór í þrot,“ segir hann. „Það voru allar færslur búnar og farnar eitthvert annað,“ bætir hann við. Því hafi ekki verið eftir neinu að slægjast í þrotabúinu. „Svo lágu endurskoðendur yfir þessu í bak og fyrir og komu með einhverja punkta, en það var ekki neitt sem hægt var að festa hönd á.“ Bankana og kröfuhafa félagsins verði svo að spyrja að því hvers vegna ekki hafi verið gengið að því fyrr. Kristján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis, segist hvorki geta né mega tjá sig um einstök mál. Almennt sé það þó þannig að reynt sé að innheimta kröfur eftir megni og gangi það ekki sé farið fram á atbeina dómstóla, eigi það við. „Og auðvitað var hér við fjölda mála að eiga hjá þessum búum, eins og vitað er,“ segir hann.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira