Þúsundir lánasamninga í óvissu vegna álits EFTA-dómstólsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. nóvember 2014 12:00 Björn Þorri Viktorsson telur að álitið eigi við um alla neytendur. Vísir/GVA
Á þessari stundu er algjörlega óvíst hvaða áhrif ráðgefandi álit EFTA mun hafa á þúsundir lánasamninga sem gerðir hafa verið eftir að lög um neytendalán voru sett árið 1994. EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í gær að það samrýmist ekki tilskipun Evrópusambandsins að miða skilmála í verðtryggðum lánum við 0 prósent verðbólgu ef þekkt verðbólgustig á lántökudegi er ekki 0 prósent. Sævar Jón Gunnarsson sjómaður höfðaði mál gegn Landsbankanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna neytendaláns sem hann tók í nóvember 2008 að fjárhæð 630 þúsund krónur. Lánið var til fimm ára. Í áliti EFTA-dómstólsins kemur líka fram að það sé íslenskra dómstóla að meta hvaða áhrif röng upplýsingagjöf af þessu tagi hefur og hvaða úrræðum er hægt að beita af því tilefni. Þá mun það koma í hlut íslenskra dómstóla að meta hvort þessi niðurstaða dómsins eigi einnig við um fasteignalán. EFTA-dómstóllinn segir að við mat á áhrifum dómsins „verði landsdómstóllinn að hafa hliðsjón af því hvort viðkomandi neytandi geti talist almennur neytandi, sem er ágætlega upplýstur, athugull og forsjáll,“ segir enn fremur í álitinu. Þessi setningu má túlka á þann veg að staða lántakenda geti verið misjöfn og íslenskir dómstólar verði að taka tillit til þess. Íslenskur lántakandi, sem hugsanlega hafi tekið verðtryggð lán áður, eigi að vera upplýstur um eðli verðtryggingar. Íslenskir dómstólar þurfi ekki að taka sama tillit til hans og ungs lántakanda sem er að taka sitt fyrsta lán, eða innflytjanda sem tekur lán í fyrsta skipti og sannarlega þekkir ekki eðli verðtryggingar. Björn Þorri Viktorsson, lögmaður Sævars Jóns Gunnarssonar, er ekki sammála þessari túlkun. Hann telur að álitið eigi við um alla neytendur. „Já, engin spurning. Ekki ætla menn að fara að hártoga það eitthvað sérstaklega,“ segir Björn Þorri. Hann segir þó ljóst að málið snúist um það hvað viðkomandi neytandi vissi og hvað hann vissi ekki þegar hann tók lánið. Björn Þorri bendir á að umbjóðandi sinn sé sjómaður með enga sérstaka menntun eða reynslu á sviði fjármála. „Ég held að það sé alveg fráleitt annað en að telja að hann sé bara réttur og klár neytandi eins og 99 prósent alls almennings,“ segir Björn Þorri. Eftir að EFTA-dómstóllinn opinberaði álit sitt í gær sendi Landsbankinn frá sér yfirlýsingu þar sem segir að eitt af þeim álitaefnum sem muni reyna á fyrir íslenskum dómstólum sé hvort tilskipun Evrópusambandsins um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum varðandi neytendalán hafi verið innleidd rétt í íslensk lög. Bankinn telur að lögin frá 1994 um neytendalán séu mjög afdráttarlaus um að ekki beri að taka tillit til breytinga á verðlagi við útreikning á áætluðum kostnaði lántaka af lántökunni. Hafi tilskipunin verið rangt innleidd kann sú spurning að vakna hvort íslenska ríkið sé skaðabótaskylt gagnvart aðilum að lánasamningum, lánveitendum eða neytendum. Samkvæmt nýjum lögum er ekki heimilt að miða við núll prósent verðbólgu þegar heildarkostnaður láns og árleg hlutfallstala kostnaðar er reiknuð. Nú skal miða við ársverðbólgu.
Mest lesið Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Fleiri fréttir Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent