Setur þú raunhæf markmið? Edda Jónsdóttir skrifar 23. nóvember 2014 10:00 visir/getty
Þó að fjölmargir strengi áramótaheit, hafa rannsóknir sýnt að aðeins 5% fólks skrifar niður markmið sín. Það er til mikils að vinna því að 95% þeirra markmiða sem skrifuð eru niður, verða að veruleika. Ef þú vilt ná árangri, skaltu byrja á að skrifa niður markmiðin þín. SMART markmiðSamkvæmt Smart-reglunni þurfa markmiðin að vera: SkýrMælanlegAlvöruRaunhæfTímasett Ég hef stundum líkt markmiðasetningu við það að draga draumana ofan úr skýjunum, horfast í augu við þá og segja: „Draumur-nú skaltu verða að veruleika“. Tökum dæmi um konu sem hefur strengt þess heit á gamlárskvöld síðastliðin tvö ár að „fara nú að leggja fyrir“. Hún hefur aldrei skrifað niður markmið sitt og ekki náð miklum árangri. Smart markmiðið hennar gæti litið svona út: Markmið mitt er að vera búin að leggja fyrir sexhundruð þúsund krónur fyrir lok ársins 2015 (skýrt). Ég ætla að byrja í janúar (alvöru) og leggja fyrir fimmtíu þúsund krónur, 5. hvers mánaðar (mælanlegt, tímasett). Þann 5. desember 2015 verð ég búin að ná markmiðinu að leggja fyrir sexhundruð þúsund krónur (raunhæft). Með þessarri aðferð eru nú 95% líkur á að hún nái markmiði sínu á tilsettum tíma. Mismunandi markmið – sama aðferðHvort sem markmið þín snúa að fjármálum, heilsu, frama, búsetu, samskiptum, áhugamálum, andlegu lífi eða framlagi þínu til samfélagsins, gildir sama aðferð. Byrjaðu á að skilgreina hvað þú vilt. Búðu svo til raunhæfa og tímasetta áætlun. Nokkur góð ráð fyrir þá sem vilja ná árangri:Veldu að vera í kringum fólk sem gefur þér byr undir báða vængi.Hafðu trú á því sem þú ætlar þér. Mundu það sem Henry Ford sagði: „Hvort sem þú trúir því að þú getir eða getir ekki – þá hefurðu rétt fyrir þér.“Verðlaunaðu þig – líka fyrir áfangasigrana. Það er ekki síður mikilvægt að njóta ferðarinnar en áfangastaðarins.Mundu eftir þakklætinu og treystu á innsæið. Kærar kveðjur, Edda
Heilsa Tengdar fréttir Magnaður bandamaður í lífi og starfi Edda Jónsdóttir ákvað að læra markþjálfun eftir að hafa farið sjálf í slíka þjálfun. Hún segir þjálfunina vera ákveðið sjálfskoðunarferli sem leiði til betra lífs og nýrra tækifæra. 19. október 2014 10:00 Þekkir þú þín kjarnagildi? Gildin okkar endurspegla það sem skiptir okkur mestu máli í lífinu. Það er mikilvægt að geta skilgreint sín persónulegu kjarnagildi, það er eins og að hafa áttavita í vasanum. 27. október 2014 09:00 Mest lesið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Risa fataherbergi í glæsilegri íbúð Patriks sem nú er til sölu Lífið Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Lífið Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Lífið Jamie XX, De La Soul og Joy Anonymous á nýrri tónlistarhátíð í Laugardal Lífið Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Tónlist Með flygil Halldórs Laxness inni í stofu Lífið
Magnaður bandamaður í lífi og starfi Edda Jónsdóttir ákvað að læra markþjálfun eftir að hafa farið sjálf í slíka þjálfun. Hún segir þjálfunina vera ákveðið sjálfskoðunarferli sem leiði til betra lífs og nýrra tækifæra. 19. október 2014 10:00
Þekkir þú þín kjarnagildi? Gildin okkar endurspegla það sem skiptir okkur mestu máli í lífinu. Það er mikilvægt að geta skilgreint sín persónulegu kjarnagildi, það er eins og að hafa áttavita í vasanum. 27. október 2014 09:00