Kostulegur klassískur farsi Sigríður Jónsdóttir skrifar 3. nóvember 2014 10:00
Leiklist: Beint í æð Borgarleikhúsið Höfundur: Ray Cooney Leikstjóri: Halldóra Geirharðsdóttir Íslensk staðfærsla: Gísli Rúnar Jónsson Leikmynd og búningar: Helga I. Stefánsdóttir Tónlist: Ólafur Björn Ólafsson Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Guðjón Davíð Karlsson, Halldór Gylfason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Sigrún Edda, Björnsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Sigurður Þór Óskarsson og Örn Árnason Farsar eru einstaklega erfitt listform. Það er ekkert grín að sviðsetja grín. Fara verður eftir öllum reglum, tímasetningar verða að ganga upp og leikararnir verða að vinna af einlægni annars er voðinn vís. Beint í æð eftir Ray Cooney, frumsýnt síðastliðinn föstudag í Borgarleikhúsinu, uppfyllir ekki einungis ofanverðar kröfur heldur neglir þær. Hilmir Snær Guðnason leikur hinn taugaveiklaða Jón Borgar, yfirlækni á Landakoti sem er í þann mund að halda mikilvægustu ræðu starfsferils síns. Hann verður fyrir stöðugum truflunum frá starfsfólki sem er á kafi að undirbúa litlu jólin, eiginkonunni sem er komin til að styðja hann og drykkfellda yfirmanninum sem krefst þess að ræðan verði óaðfinnanleg. En allt fer á annan endann þegar Díana Thors, leikin af Maríönnu Clöru Lúthersdóttur, mætir á svæðið og tilkynnir Jóni Borgari að ástarævintýri þeirra fyrir sautján árum hafi leitt til fæðingar sonar sem hann vissi aldrei af. Hilmir Snær ber sýninguna á herðum sér og er á sviði nær allan tímann. Þetta er kannski ekki hlutverk sem áhorfendur eru vanir að sjá hann í en þetta er vonandi ekki hans síðasta á grínsviðinu. Hann er algjörlega frábær og gefur sig allan í hlutverkið frá fyrsta augnabliki. Svitinn hreinlega bogar af honum á meðan hann reynir að fela sannleikann um soninn og ekki er hægt annað en að vorkenna hinum seinheppna Jóni. Það er stórgaman að sjá leikara skína í hlutverkum sínum og er Guðjón Davíð Karlsson alveg á heimavelli í hlutverki sínu sem Grettir Sig, taugaskurðlæknirinn sem býr ennþá heima hjá mömmu sinni. Hann er bráðfyndinn og finnur frábært jafnvægi á milli grínsins og einlægninnar. Slíkt er bara á færi fárra. Verkið er þýtt og staðfært af Gísla Rúnari Jónssyni sem sýnir ávallt nær óaðfinnanleg vinnubrögð. Staðfærslan er fyndin án þess að vera yfirþyrmandi og orðagrínið er oft á tíðum algjörlega frábært. Örn Árnason gerir sér lítið fyrir og hreinlega stelur senunni sem Mannfreð, elliæri sjúklingurinn sem dreymir um einkaherbergi á sjúkrahúsinu, helst með míníbar. Barátta hans við pottablóm og endurteknar tilraunir til að stela áfenginu fyrir litlu jólin eru óborganlegar. Leikgervin, sem Árdís Bjarnþórsdóttir hannar, eru virkilega vel gerð. Sigrún Edda Björnsdóttir er nánast óþekkjanleg sem Gróa, móðir Grettis, og á stórskemmtilega innkomu í seinniparti verksins. Hönnun sýningarinnar, sem er í höndum Helgu I. Stefánsdóttur, er að sama skapi virkilega vel gerð. Allur leikhópurinn stendur sig með prýði og er hópurinn firnasterkur þrátt fyrir að það halli aðeins á leikkonurnar í sýningunni en Þórunn Arna Kristjánsdóttir á virkilega góða spretti sem stressaði yfirdeildarhjúkrunarfræðingurinn Jórunn. Sýningin dalar aðeins strax eftir hlé og tók nokkra stund fyrir leikarana að ná upp sama tempóinu. Annars stjórnar Halldóra Geirharðsdóttir sýningunni af mikilli nákvæmni og keyrir hana á ofsahraða með tilheyrandi hurðaskellum og hlaupum. Hvert augnablik er nýtt til að kitla hláturtaugar áhorfenda og stundum heyrðust varla orðaskil í leikurunum fyrir hlátursrokunum úti í sal. Þessi sýning á bara eftir að verða betri.Niðurstaða: Sprenghlægilegur farsi sem á eftir að slá í gegn.
Gagnrýni Mest lesið Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í heilt ár Lífið Bróðurinn grunaði að Hulda væri hálfsystir þeirra Lífið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Lífið Theodór Elmar og Pattra í sundur Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Retinól-salat tekur yfir TikTok Matur Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Lífið Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Meðalmennskan plagar Brján Furðuleg forréttindablinda Slappur smassborgari Shine on, you crazy Íslendingar! Skömminni skilað Friðrik Ómar bauð upp á sveppi – og Villi hefði elskað það! Freðinn faðir, fáránlegir fasistar og fyrsta flokks bíó Veisla fyrir augu og eyru Sjá meira