Svíar borga minna en við Haraldur Guðmundsson skrifar 8. september 2014 08:00 Þann 1. júní síðastliðinn tóku gildi lög sem leiddu meðal annars til lækkunar á áfengisgjaldi. Verð á einum hálfs lítra bjór, sem er fimm prósent að styrkleika, lækkaði þá um eina krónu. Vísir/Pjetur
Bjórinn Bríó er um hundrað krónum ódýrari í áfengisverslun sænska ríkisins en í verslunum ÁTVR. Hér kostar lítil flaska af bjórnum 329 krónur en 233 krónur í Svíþjóð. Bríó hefur verið seldur í áfengisverslun sænska ríkisins, Systembolaget, frá síðustu mánaðamótum. Hann er bruggaður hér á landi af Borg brugghúsi sem er í eigu Ölgerðarinnar. Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir það líklegt að áfengisgjöld og aðrir skattar séu lægri í Svíþjóð sem skýri verðmuninn á milli landanna.Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.„Ég held að álagningin sé sambærileg á milli landa á heildsölustiginu en eftir því sem ég best veit eru meiri álögur hér en í flestum öðrum löndum. Heilt yfir fara tveir þriðju af útsöluverði bjórs til ríkisins með einum eða öðrum hætti. Það felst í áfengisgjöldum, virðisaukaskatti og álagningu ÁTVR,“ segir Andri og heldur áfram: „Ef við tökum ýktasta dæmið þá fara um 90 prósent af verði Tindavodka til ríkisins. Ég held að ég geti fullyrt að það sé ekkert annað ríki með álíka álögur á áfengi. Þetta gerir það að verkum að verð á milli landa er ekki samanburðarhæft.“ Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts brugghúss, sagði í Fréttablaðinu í október síðastliðnum að áfengisgjöld ríkisins hefðu ýtt fyrirtækinu út í aukinn útflutning. Markaðurinn hér heima væri orðinn hamlandi sökum skattpíningar. Andri segir áfengisgjöldin ekki hafa stuðlað að auknum útflutningi Ölgerðarinnar. „Útflutningsáætlun okkar byggir eingöngu á okkar áhuga á að vaxa og þessir bjórar frá Borg eru að vekja mikla athygli.“ Bríó var þróaður í samstarfi við Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Verðmunurinn kom Kormáki Geirharðssyni, eiganda Ölstofunnar, á óvart þegar blaðamaður hafði samband við hann. „Ég vissi ekkert af þessu og finnst þetta skrítið. Ég vildi gjarnan að Bríó væri hundrað krónum ódýrari hérna heima,“ segir Kormákur.
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira