Styrkir verkefni 5 fyrirtækja um 1,6 milljarða Haraldur Guðmundsson skrifar 27. júní 2014 08:00 Fulltrúar rúmenska ríkisins, sveitarfélaga og einkafyrirtækja kynntu sér árangur Íslands á sviði orkumála. Mynd/Orkustofnun
Jarðhita- og vatnsaflsverkefni sem fimm íslensk fyrirtæki koma að í Rúmeníu fengu í vikunni styrk að jafnvirði samtals 1,6 milljarða króna úr Uppbyggingarsjóði EES. Heildarumfang verkefnanna þriggja er um fjórir milljarðar króna. Verkefnin á sviði jarðhita eiga eftir að auka nýtingu hans í Rúmeníu um allt að 30 prósent. Fyrirtækin sem um ræðir eru Mannvit, Íslenskar orkurannsóknir (Ísor), Iceland Geothermal Engineering, Landsvirkjun Power og Verkís. Mannvit og Ísor koma að stærsta verkefninu sem tengist nýtingu jarðvarma í rúmensku borginni Timisoara. Icelandic Geothermal Engineering verður þátttakandi í jarðhitaverkefni í Oradea þar sem nýta á heitt vatn til upphitunar í borginni. Landsvirkjun Power og Verkís koma að lokum að uppbyggingu tveggja lítilla vatnsaflsvirkjana á svæðinu Somes-Tisa í Norður-Rúmeníu. „Þetta er gríðarlega jákvætt fyrir okkur og skiptir máli vegna allra þeirra verkefna sem við vinnum nú við og tengjast jarðhitamálum í Mið-Evrópu. Við munum fara strax í undirbúning og gerum ráð fyrir að hefja framkvæmdir á síðasta fjórðungi þessa árs,“ segir Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits. Í mars 2014 opnaði Uppbyggingarsjóður EES, áður Þróunarsjóður EFTA, fyrir umsóknir um styrki úr orkuáætluninni Rondine. Áætlunin fjármagnar verkefni sem stuðla að aukinni notkun endurnýjanlegrar orku í Rúmeníu. Rondine bárust umsóknir vegna tíu verkefna og ákveðið var að styrkja fjögur. Orkustofnun hefur undanfarin fjögur ár tekið þátt í mótun og framkvæmd áætlunarinnar. Framlag Íslands til Uppbyggingarsjóðs EES nemur um 960 milljónum króna á ári. Í Rúmeníu má finna yfir hundrað jarðvarmaveitur sem nýta jarðefnaeldsneyti. Stór hluti þeirra nýtir innflutt gas auk þess sem mikið er af vatnsafli sem ekki hefur verið virkjað í landinu.
Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira