Dregst um nokkra daga Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 8. maí 2014 10:00 Frosti Sigurjónsson „
Það getur farið svo að það tefjist um einhverja daga, viku eða svo, að fólk geti sótt um skuldaleiðréttingar. Það breytir hins vegar engu um að niðurstöður aðgerðanna munu liggja fyrir eftir fyrsta september,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnisstjóri skuldaniðurfellinga ríkistjórnarinnar. Ríkisskattstjóri telur ekki raunhæft að hægt verði að sækja um leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum þann 15. maí. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis er þessu ósammála. Ríkisskattstjóri segir í umsögn um frumvarp til leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána að í því sé miðað við að leiðréttingin taki til fasteignaveðlána heimila. Hugtakið heimili sé hins vegar vandmeðfarið þar sem lagalega skilgreiningu skorti á því. Þá segir enn fremur að frumvarpið geri ráð fyrir að unnt verði að sækja um leiðréttingu frá og með 15. maí 2014. Ríkisskattstjóri telur að gildistaka frumvarpsins þarfnist endurskoðunar í ljósi þess hve nálægt er komið þeirri dagsetningu. Ætla megi að umfjöllun Alþingis taki nokkurn tíma og því umrædd dagsetning ekki lengur raunhæf. Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að frumvarpið verði afgreitt úr nefndinni á föstudag. Umfjöllun um það sé á áætlun. „Þegar frumvarpið hefur verið afgreitt frá nefndinni liggja fyrir allar breytingar sem gerðar verða á því. Það skiptir því ekki öllu máli hversu langan tíma umræður um frumvarpið taka á þingi,“ segir Frosti. Ríkisskattstjóri hafi því nægan tíma til að undirbúa málið. „Við gerum okkar, hann gerir sitt,“ segir Frosti og er sannfærður um að það verði hægt að sækja um skuldaleiðréttingu 15. maí næstkomandi.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira