Enn eitt vorið hafa risið heitar umræður um veiðimenningu við Þingvallavatn, sérstaklega á samfélagsmiðlum, eftir fréttir og myndbirtingar af dauðum stórurriða með þeim orðum að „bátsfylli“ af urriða hafi fengist í einni veiðiferð á Þingvallavatni fyrir nokkrum dögum.
Þingvallanefnd samþykkti tillögu þjóðgarðsvarðar um breyttar veiðireglur í Þingvallavatni innan þjóðgarðsins 6. mars. Veiðitíminn hófst 20. apríl en til 31. maí er einungis leyft að veiða með flugu og öllum urriða skal sleppt á þessu tímabili í landi þjóðgarðsins.

Spurður sérstaklega um netaveiði á urriða segist Ólafur Örn hafa heyrt sögur af urriðaveiði í net og að sumar þeirra valdi áhyggjum.
„Ég geri hins vegar mikinn greinarmun á því hvernig menn standa að slíkri veiði. Það eru bændur við vatnið sem hafa stundað mjög hóflegar veiðar. En ef sögur eiga sér stoð í raunveruleikanum þá er allt annað uppi á teningnum,“ segir Ólafur og telur að hlusta megi á það sjónarmið að kaupa upp silungsnetin í vatninu af bændum, ef um er að ræða stórfellda veiði á stofni sem verið er að reyna að vernda með reglum um að veiða og sleppa fiski.