Auðveldara að skilja og aðstoða nemendur 14. janúar 2014 12:00 Svava segir námið hagnýt. Það hefur nýst henni jafnt í starfi sem einkalífi. MYND/GVA
Svava Jóhannesdóttir, kennari við hársnyrtiskóla Tækniskólans, lauk námi í undirstöðuatriðum hugrænnar atferlismeðferðar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands síðastliðið vor. Hún er ánægð með námið og hefur það nýst henni bæði í starfi og einkalífi. "Ég hef kennt við framhaldsskóla í tólf ár og finnst ég skynja aukna vanlíðan nemenda sem margir glíma við þunglyndi, kvíða og ýmislegt annað. Ég vissi að í náminu væru kenndar aðferðir til að takast á við slíkt með uppbyggilegum hætti og hugsaði með mér að þannig ætti ég mögulega auðveldara með að skilja og aðstoða nemendur. Auk þess var ég sannfærð um að nám af þessu tagi gæti nýst mér nýst vel, bæði í starfi og einkalífi," segir Svava. Megináhersla námsins er á hagnýta þekkingu á undirstöðuatriðum hugrænnar atferlismeðferðar. Markmiðið er að veita fræðilega yfirsýn yfir grunnatriði kenninga um hugræna atferlismeðferð, líkön, hugtakanotkun og aðferðir. Nemendur öðlast skilning á tengslum kenninga og meðferðar, einkum við þunglyndi, kvíða og álag í daglegu lífi. Námið er ekki eiginlegt meðferðarnám en nemendur læra að beita grunnatriðum í samtalsaðferðum hugrænnar atferlismeðferðar, þekkja einkenni og leggja mat á alvarleika streitu, kvíða og þunglyndis. Þeir læra að nota fimm þátta líkan hugrænnar atferlismeðferðar og þekkja tengsl hugsana, hegðunar og tilfinninga. Þeir læra sömuleiðis að beita aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar í fyrirbyggjandi tilgangi í afmörkuðum starfstengdum verkefnum. Námið er einkum ætlað háskólamenntuðu fagfólki innan heilbrigðis-, félags- og menntavísinda sem og stjórnendum stofnana og fyrirtækja. Svava segir nemendur hafa komið úr öllum áttum. „Það gaf mikla breidd og er gaman að sjá hversu víða aðferðirnar geta nýst.“ Svava segir samtalstæknina sem kennd er í náminu hafa nýst sér vel í starfi. „Við lærum til dæmis að spyrja opinna spurninga sem kalla fram önnur og ítarlegri svör en já og nei. Ef mér finnst ástandið alvarlegt veit ég nú líka hvert ég get vísað skjólstæðingum mínum.“ Námið byggist upp á 98 kennslustundum og 21 klukkustunda handleiðslu en kennslan fer fram í sjö tveggja daga lotum. Á vormisseri eru kenndar fjórar lotur og á haustmisseri þrjár. Handleiðslan fer fram í litlum hópum eftir hverja kennslulotu. „Mér fannst hún sérlega gagnleg og námið í heild afar hagnýtt.“ Námið gefur 10 ECTS einingar á grunnstigi háskóla og getur Svava vel hugsað sér að fara í frekara nám. Það hefst aftur í lok janúar og enn eru nokkur sæti laus. Allar nánari upplýsingar er að finna á endurmenntun.is en þar er jafnframt hægt að sækja um námið.200 námskeið á vormisseri Á vormisseri eru hátt í 200 námskeið á dagskrá hjá Endurmenntun Háskóla Íslands en árlega sækja um sjö þúsund manns námskeið þar. Þátttakendur hafa afar ólíka reynslu og menntun og eru á öllum aldri. Sumir sækja námskeið til að styrkja sig í starfi en aðrir sækjast meira eftir fróðleik í bland við skemmtun. Námskeiðsframboðinu er skipt upp í tvo meginflokka, Fyrir þig og Fyrir starfið. Eins og ávallt er mikið úrval starfstengdra námskeiða á ýmsum fræðasviðum sem má finna í flokknum Fyrir starfið. Auk þess eru fjölmargir spennandi valkostir á sviði menningar, persónulegrar hæfni og tungumála í flokknum Fyrir þig. Endurmenntun hvetur alla til að nýta þá möguleika sem þeir eiga á fræðslustyrkjum t.d. hjá stéttarfélögum. Skráning á námskeið vormisseris er nú þegar hafin á endurmenntun.is og í síma 525 4444.
Mest lesið Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Greiðsluáskorun „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Sjá meira
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent