Íslandsbanki hagnaðist um rúmlega átján milljarða Stefán Árni Pálsson skrifar 20. nóvember 2014 09:09 Hólmfríður Einarsdóttir, markaðsstjóri Íslandsbanka og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Íslandsbanki hefur sent frá sér uppgjör fyrir þriðja ársfjórðunginn en þar kemur fram að bankinn hagnaðist um rúmlega átján milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins. Á síðasta ári hagnaðist bankinn um 15,4 milljarða. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 13,8 prósent samanborið við 13,4 prósent á sama tímabili 2013, þrátt fyrir að eigið fé bankans hækkaði um 14 prósent á milli ára úr 160 milljarða króna í 181 milljarða króna. Hreinar vaxtatekjur voru 20,6 ma. kr samanborið við 21,9 ma. kr. á sama tíma á síðasta ári. Kostnaðarhlutfall bankans hefur lækkað úr 58,4% á árinu áður yfir í 54,4% á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Heildareignir bankans voru 931 milljarðar króna eftir fyrstu níu mánuði ársins samanborið við 866 milljarða í árslok 2013. „Ég er ánægð með afkomuna á fyrstu 9 mánuðum ársins sem er í samræmi við áætlanir. Það verður þó áframhaldandi áskorun að styrkja grunnreksturinn með kostnaðaraðhaldi og auknum tekjuvexti. Við höfum lagt áherslu á að auka hagkvæmni í rekstri en lækkun á stjórnunarkostnaði var 6,4% milli ára. Útlán til viðskiptavina hafa aukist um 54 milljarða króna á þessu ári,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. „Íslandsbanki hefur alltaf verið sterkur á sviði vöruþróunar á fjármálamarkaði og lagt áherslu á að bregðast við þörfum viðskiptavina á því sviði. Gott dæmi um þetta eru svokölluð fyrstukaupalán sem við kynntum á fjórðungnum en það eru fasteignalán á betri kjörum fyrir þá sem eru að kaupa húsnæði í fyrsta skipti. Við erum einnig stöðugt að þróa Íslandsbanka Appið með nýjum aðgerðum og sjáum 100% aukningu í fjölda færslna frá áramótum en samtals hafa 45 þúsund notendur hlaðið Appinu niður.“ Birna segir að um 5.000 viðskiptavinir Íslandsbanka eiga rétt á leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum sínum í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar. „Leiðréttingin er fjármögnuð með sérstökum bankaskatti og gerir Íslandsbanki ráð fyrir að greiða um 2,4 milljarða króna í þann skatt á árinu. Mikilvægt er að þetta verði tímabundin skattheimta eins og kynnt hefur verið. Aukin skattheimta skekkir mjög samkeppnishæfni íslenskra banka við erlendar fjármálastofnanir í þjónustu við stærri fyrirtæki landsins.“Hér að neðan má sjá myndbandsupptöku af Jóni Guðna Ómarssyni, fjármálastjóra, þar sem hann ræðir uppgjörið.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira