Landsvirkjun þarf að skammta rafmagn til stórkaupenda Gissur Sigurðsson skrifar 16. janúar 2014 07:17 Fréttablaðið/Vilhelm
Landsvirkjun verður að öllum líkindum að grípa til rafmagnsskömmtunar til stórkaupenda vegna skorts á raforku. Skömmtunin mun ekki snerta almenning en gæti kostað Landsvirkjun allt að 700 milljónir króna í töpuðum tekjum. Það er vatnsskortur í vatnslónum fyrirtækisins sem veldur þessu, en það má rekja til lítillar úrkomu og kulda á hálendinu síðastliðið vor og sumar. Ekki náðist að fylla lónin í haust, eins og venjan er, og veturinn núna hefur verið óvenju þurr og kaldur og því hefur innrennsli í lónin verið langt undir meðallagi. Vatnsborð í Þórisvatni, sem er langstærsta lónið, er nú heilum fimm metrum undir meðallagi, sex metrum undir meðallagi í Hálslóni og fjórum metrum undir meðallagi í Blöndulóni. Vatnsbúskapurinn hefur því ekki verið verri í mörg ár, en 15 ár eru síðan að grípa varð til skömmtunar af sömu sökum. Ef til kemur verður raforka skert, eða skömmtuð, til álveranna í Straumsvík, á Grundartanga og í Reyðarfirði og til Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga og Bektrómal verksmiðjunnar á Akureyri. Allt að tíu prósent orkunnar, sem Landsvirkjun selur til þessara fyrirtækja, er skerðanleg í slökum vatnsárum, samkvæmt samningum, en Landsvirkjun telur að skerðingin verði mun minni, eða um þrjú prósent, og gæti husanlega varað frá miðjum febrúar til aprílloka.
Mest lesið Lagning gjaldþrota Viðskipti innlent Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Viðskipti innlent Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Viðskipti erlent Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Atvinnulíf Að líða eins og svikara í vinnunni Atvinnulíf Uppsagnir hjá Fjársýslunni Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Viðskipti innlent Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Sjá meira