Lýður og Sigurður sýknaðir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júní 2014 15:18 Lýður Guðmundsson og Sigurður Valtýsson. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Lýð Guðmundsson og Sigurð Valtýsson af ákæru sérstaks saksóknara um umboðssvik og brot gegn hlutafélagalögum sem stjórnarmenn í Vátryggingafélagi Íslands (VÍS). Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir í samtali við Vísi að embættið muni nú fara yfir niðurstöður nýuppkveðins dóms. Það sé í höndum ríkissaksóknara að ákveða hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar.Milljóna króna lán Ákæran snerist að þremur atriðum. Í fyrsta lagi 59 milljóna króna lán sem Lýður, fyrir hönd VÍS, veitti Sigurði sjálfum í febrúar 2009 og var ítrekað framlengt og í öðru lagi tugmilljóna lán Sigurðar, fyrir hönd VÍS, til Korks ehf., félags í eigu Lýðs og Ágústs bróður hans, sem var framlengt og hækkað sex sinnum. Þessar tvær lánveitingar voru taldar varða við 104. grein hlutafélagalaga þar sem meðal annars er lagt bann við því að hlutafélag láni stjórnarmönnum sínum fé. Hámarksrefsing fyrir slíkt brot er tveggja ára fangelsi. Þessi lán eru hins vegar ekki talin varða við umboðssvikaákvæði hegningarlaga, meðal annars af því að lánin voru greidd upp og af þeim varð hvorki tjón né teljandi áhætta á því. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að ekki væri næg stoð í gögnum málsins til að nægja gegn neitun ákærða og framburði vitnis. Ákæruvaldið hefði ekki sannað sekt Lýðs við lánsveitinguna í fyrri liðnum og sömuleiðis ekki sýnt fram á sekt Sigurðar í öðrum lið ákærunnar.Meint umboðssvik Þriðja atriðið í ákærunni var hins vegar ætluð umboðssvik Lýðs þegar VÍS keypti 40 prósenta hlut í félaginu Reykjanesbyggð ehf. af Kristjáni Gunnari Ríkharðssyni, svila Sigurðar, fyrir 150 milljónir. Umboðssvik varða allt að tveggja ára fangelsi og sex árum ef sakir teljast mjög miklar. Dómurinn taldi sömuleiðis sérstakan saksóknara ekki hafa sannað sekt Lýðs þar sem gögn í málinu hefðu ekki nægilega stoð til að nægja gegn neitun Lýðs og framburði vitna fyrir dómnum. Sérstakur saksóknari réðst í húsleit hjá VÍS vegna rannsóknar á málefnum félagsins í maí 2011 og færði fjóra til yfirheyrslu. Rannsóknin á VÍS var í upphafi mun umfangsmeiri og snerist meðal annars um samtals 41 lán sem VÍS veitti Existu árið 2008. Þau námu samtals 84,4 milljörðum, þótt útistandandi kröfur VÍS á Existu hafi aldrei verið hærri en sex milljarðar í einu. Þá voru lán til fleiri einstaklinga og félaga til rannsóknar. Ekki hefur verið ákært fyrir þessar lánveitingar.
Tengdar fréttir Lýður og Sigurður mættu ekki Lýður Guðmundsson og Sigurður Valtýsson munu ekki koma til landsins og taka afstöðu til ákæru sérstaks saksóknara fyrr en í síðari hluta nóvember. 30. október 2013 10:15 Sérstakur ákærir Lýð og Sigurð í VÍS-málinu Alls eru á þriðja hundrað milljóna viðskipti VÍS talin saknæm í ákæru sérstaks saksóknara gegn Lýði Guðmundssyni og Sigurði Valtýssyni. Þrír sem höfðu réttarstöðu sakbornings á fyrri stigum eru ekki ákærðir. 17. október 2013 07:00 Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Sjá meira
Lýður og Sigurður mættu ekki Lýður Guðmundsson og Sigurður Valtýsson munu ekki koma til landsins og taka afstöðu til ákæru sérstaks saksóknara fyrr en í síðari hluta nóvember. 30. október 2013 10:15
Sérstakur ákærir Lýð og Sigurð í VÍS-málinu Alls eru á þriðja hundrað milljóna viðskipti VÍS talin saknæm í ákæru sérstaks saksóknara gegn Lýði Guðmundssyni og Sigurði Valtýssyni. Þrír sem höfðu réttarstöðu sakbornings á fyrri stigum eru ekki ákærðir. 17. október 2013 07:00