Rekstrartekjur Landsvirkjunar 48,6 milljarðar Stefán Árni Pálsson skrifar 21. febrúar 2014 14:43 Hörður Arnarson forstjóri Landskirkjunnar. vísir/vilhelm
Hagnaður Landsvirkjunar fyrir óinnleysta fjármagnsliði hækkaði um 17,5% á milli ára en þetta kemur fram í fréttatilkynningu en Landsvirkjun hefur nú birt ársreikninginn fyrir árið 2013. Rekstrartekjur námu 48,6 milljarðar króna sem er 3,7% hækkun frá árinu áður. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 14 milljarðar króna sem mun vera 17,5% hækkun. Handvært fé Landsvirkjunar frá rekstri nam 29,7 milljarðar króna eða 9,4% meira en á árinu 2012. Tap ársins var 4,4 milljarðar króna. „Árið 2013 var mesta raforkuvinnsla og sala í sögu Landsvirkjunar. Seldar voru 13.186 Gígavattsstundir sem er aukning um 416 gígavattsstundir frá fyrra ári. Reksturinn gekk vel og að mestu áfallalaust. Rekstrartekjur, EBITDA og hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði jukust á árinu,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landskirkjunnar. „Þrátt fyrir þennan árangur í orkusölunni í erfiðu markaðsumhverfi var Landsvirkjun rekin með tapi á síðasta ári. Ástæðu þess má rekja til lækkunar á álverði á heimsmarkaði, sem kemur meðal annars fram í mikilli lækkun á bókfærðu verði innbyggðra afleiða, sem fyrirtækið getur haft takmörkuð áhrif á.“ Raforkuvinnsla Landsvirkjunar á árinu 2013 gekk vel en selt magn nam 13.186 gígavattsstundir á árinu. Hlutur vatnsafls er um 96% í vinnslu Landsvirkjunar og hlutur jarðvarma er 4%. Rekstur aflstöðva gekk vel á árinu fyrir utan eina alvarlega bilun sem varð í háspennutengingu í Búrfelli.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Sjá meira