Róbert Aron búinn að semja við danskt lið Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. mars 2014 09:15 Róbert Aron Hostert er á leið í atvinnumennsku. Vísir/Vilhelm
Róbert Aron Hostert, leikmaður ÍBV í Olís-deild karla í handbolta, er búinn að semja til tveggja ára við danska úrvalsdeildarfélagið Mors-Thy og gengur í raðir liðsins í sumar.Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en hjá liðinu hittir Róbert hornamanninn knáa Guðmund Árna Ólafsson sem kom til Mors-Thy frá Bjerringbo-Silkeborg fyrir tveimur árum. „Ég lít á þetta sem ákveðinn stökkpall. Mér finnst mjög líklegt að ég verði í Danmörku næstu tvö árin en auðvitað stefni ég svo að því að fara til stærra félags í sterkari deild í framtíðinni,“ segir hann við Morgunblaðið. Róbert Aron varð Íslandsmeistari með Fram í fyrra og yfirgaf þá liðið til að ganga í raðir Eyjamanna og nú fer hann frá Eyjum eftir eitt tímabil þar. Hann hefur spilað vel í vetur og skorað 82 mörk í 14 leikjum eða 5,9 mörk að meðaltali í leik. Hann glímdi við meiðsli um mitt mót og missti þá af fimm deildarleikjum. Eyjaliðið, sem er nýliði í Olís-deildinni, hefur staðið sig frábærlega en það er í öðru sæti, þremur stigum á eftir toppliði Hauka þegar fjórar umferðir eru eftir. Það er með þriggja stiga forystu á Val og líklegt til að landa heimaleikjarétt í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Mors-Thy endaði í 10. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og leikur nú í umspili um áframhaldandi veru í deildinni.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira