Jónmundur hættir hjá Sjálfstæðisflokknum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 4. febrúar 2014 12:35 Jónmundur hefur verið framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins síðan í júní 2009. Vísir/Vilhelm
Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sænska fjármálafyrirtækisins ScandCap á Íslandi. Jónmundur greindi frá ákvörðun sinni á fundi miðstjórnar í Valhöll í dag. Hann hefur verið framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins síðan í júní 2009. Þar áður sat hann í bæjarstjórastóli á Seltjarnarness frá árinu 2002 til 2009. Jónmundur hefur þegar störf á nýjum vettvangi en mun jafnframt starfa með nýjum framkvæmdastjóra flokksins næstu mánuði og sem ráðgjafi Sjálfstæðisflokksins. Hjá Scandcap, sem stofnað var árið 2005, starfa um tuttugu manns á skrifstofum fyrirtækisins í Stokkhólmi og Höfðatorgi í Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í að veita fyrirtækjum, stórum sem smáum, samtökum og opinberum aðilum margvíslega þjónustu, bæði hérlendis og erlendis. Einkum felst starfsemi þess í ráðgjöf við fjármögnun fyrirtækja, fjárhagslegri endurskipulagningu, verðmati auk aðstoðar við kaup, sölu og samruna fyrirtækja. Fyrirtækið hefur átt í vaxandi viðskiptum á Íslandi undanfarin ár og stýrði meðal annars sölunni á íslenska fyrirtækinu Betware sl. haust en sala fyrirtækisins til austurrískrar samsteypu er með stærstu fyrirtækjasölum síðustu ára á Íslandi. ScandCap hefur um allnokkurt skeið undirbúið opnun skrifstofu á Íslandi og hefur Jónmundur nú verið ráðinn til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins á Íslandi.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira