Enn lækkar bensínverð Stefán Árni Pálsson skrifar 8. desember 2014 14:00 Frá því að verðið var sem hæst um miðjan júní hefur bensínverð því lækkað um fimmtán prósent. Vísir/GVA
Vegna áframhaldandi lækkunar á heimsmörkuðum hafa Skeljungur og Orkan ákveðið að lækka enn frekar verð á bensíni og dísil. Nú er lækkunin á bensíni þrjár krónur og dísil tvær krónur. Verðið hjá Orkunni er því 217,50 kr/l á bensíni og 218,50 kr/l á dísil. Frá því að verðið var sem hæst um miðjan júní hefur bensínverð því lækkað um fimmtán prósent. Í tilkynningu frá Skeljungi kemur fram að á sama tíma hafi dollarinn hækkað um tæp tíu prósent gagnvart íslensku krónunni sem hafi staðið í vegi fyrir enn frekari lækkunum.Hugi Hreiðarsson.Vísir/AntonVerðlækkanir á par við önnur Evrópulönd Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, segir í samtali við Vísi að verðið hafi hæst verið 251,50 krónur þann 18. júní síðastliðinn. Síðan hafi verðið því lækkað um 34 krónur. „Ef við miðum við meðalfjölskyldu sem eyðir 95 lítrum á mánuði erum við að tala um 39 þúsund króna árssparnað,“ segir Hugi. Aðspurður hvað sé í kortunum varðandi bensínverð segir Hugi engin teikn á lofti varðandi hækkanir. „Maður hefur lært það á þessu brasi að það sem er rétt fyrir hádegi getur verið kolrangt eftir hádegi.“ Þá bendir Hugi á að hefði gengi dollas ekki styrkst gagnvart krónu undanfarið hálft ár væri lækkun á bensínverði líklega níu krónum meiri. „Verðlækkanirnar eru áþekkar því sem er að gerast í Evrópulöndunum,“ segir Hugi. Erfiðara sé að bera saman bensínverð hér á landi og í Bandaríkjunum. „Evrópulöndin skattleggja mun hærra en vestanhafs. Þeir ná inn sköttunum annars staðar.“ Gróf athugun Huga, að beiðni fréttamanns, leiddi í ljós að verð á bensíni hefur ekki verið lægra hér á landi síðan í febrúar 2011.
Mest lesið John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Viðskipti innlent Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Viðskipti innlent ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Sjá meira