Siggi San selur suZushi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. desember 2014 13:10 Siggi San í kunnuglegri stellingu á suZushi í Kringlunni. Mynd/suZushi
Einar Sturla Moinichen, eigandi Sushibarsins á laugavegi og Suðurlandsbraut auk Sake-barsins hefur fest kaup á zuSushi á Stjörnutorgi í Kringlunni af Sigurði Karli Guðgeirssyni, betur þekktum sem Sigga San. Einar Sturla er einnig eigandi Lava og Hressó. Veitingageirinn greindi fyrst frá. „Hann vill bara losna við kallinn,“ segir Siggi hlæjandi í samtali við Vísi. Þeir Einar Sturla hafa verið í samkeppni um sushi-bransanum í höfuðborginni en hún heyrir nú sögunni til. Í bili að minnsta kosti. Siggi segist hafa samþykkt að selja Einari Sturlu staðinn vegna þess að þeir byggi á sömu hugmyndafræði. Sushi sé handgert á þeirra stöðum á meðan notast sé við róbóta á öðrum hérlendis. Siggi hefur verið eigandi suZushi ásamt eiginkonu sinni, Ástu Sveinsdóttur, frá opnun staðarins í febrúar 2010. Nú ætlar hann hins vegar að einbeita sér alfarið að hamborgurum en Siggi er eigandi Roadhouse við Snorrabraut.Siggi San og félagar í Kringlunni.Mynd/suZushi„Ég ætla að fara 100 prósent í það. Hræða alla hamborgaraframleiðendur landsins,“ segir Siggi hlæjandi. Hann var einmitt á leiðinni á Roadhouse þegar blaðamaður náði af honum tali. „Ég ætla að fá mér grísasamloku og kók,“ segir Siggi og hlær. „Þetta er tíminn til að fitna. Það má á þessum tíma,“ segir Siggi. Hann bætir við að ein ástæða þess sem þau hjónin hafi selt staðinn sé vegna þess að þau séu að minnka við sig. Þau eiga nefnilega von á öðru barni sínu í mars.
Mest lesið Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Sjá meira