Gafflar Lauf Forks í verslanir í Ameríku Haraldur Guðmundsson skrifar 22. október 2014 07:00 Bergur Benediktsson, Guðberg Björnsson, Rúnar Ómarsson og Benedikt Skúlason starfa hjá Lauf Forks. Vísir/Ernir
Lauf Forks hefur samið við bandaríska fyrirtækið QBP um dreifingu á hjólagöfflum nýsköpunarfyrirtækisins í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó og Mið-Ameríku. QBP selur hjólreiðavörur til yfir fimm þúsund verslana. „Fyrirtækið er stærsti dreifingaraðili hjólavarnings í heiminum og nú geta verslanir á lykilmarkaðssvæðum tekið gafflana okkar til sölu á einfaldan hátt. Þetta er því stórt skref fyrir okkur og mikill gæðastimpill,“ segir Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri og einn af eigendum Lauf Forks. Nýsköpunarfyrirtækið hefur þróað nýja gerð af göfflum fyrir reiðhjól. Þeir eru smíðaðir úr koltrefjum, eru innan við kíló að þyngd og því talsvert léttari en hefðbundnir demparagafflar. „Við höfðum áður gert dreifingarsamninga á ýmsum markaðssvæðum en höfum nú við hakað við stærsta boxið eða Norður-Ameríku,“ segir Benedikt um samninginn við QBP (Quality Bicycle Products). Samningurinn var að sögn Benedikts undirritaður í kjölfar þátttöku Lauf í vörusýningunum Eurobike í Þýskalandi og Interbike í Bandaríkjunum. „Við erum að bjóða upp á ansi framandi hjólagaffla sem menn eiga við fyrstu sýn erfitt með að ímynda sér að virki almennilega. Það kemur ekkert í staðinn fyrir það að menn prófi gafflana og þarna fengu starfsmenn QBP tækifæri til þess.“ Gafflarnir hafa verið í þróun í tæp fjögur ár. Lauf samdi á síðasta ári við fyrirtæki sem framleiðir hjól og hjólaíhluti úr koltrefjum og fær nú um tvö hundruð gaffla á mánuði frá Kína. „Okkar næstu skref verða fólgin í að byggja á þessum samningi og vonandi auka framleiðsluna. Við munum einnig nýta okkur sölunet QBP til að þróa nýjar en keimlíkar vörur. Það stendur okkur einna helst fyrir þrifum í augnablikinu að það hafa ekki nægjanlega margir fengið að prófa gafflana okkar. Nú ætti það að breytast.“
Mest lesið „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira