Midi.is fær samkeppni Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2014 16:42 Tix er ætlað að annast sölu miða á ýmsa viðburði á Íslandi, líkt og á tónleika og leikhússýningar.
Miðasöluvefurinn Tix fór í loftið í dag en honum er ætlað að annast sölu miða á ýmsa viðburði á Íslandi, líkt og á tónleika og leikhússýningar. Miðasala á Sónar Reykjavík 2015 er þegar hafin á síðunni og á næstu vikum munu enn fleiri viðburðir bætast við, segir í tilkynningu. „Þróunarvinnunni er ekki lokið og er stefnt að því að innan skamms geti notendur skráð sig inn, valið sér sæti, átt uppáhaldssæti í hinum ýmsu sölum á landinu og margt fleira sem fram að þessu hefur ekki verið í boði í miðasölu hér á landi. Stór hluti vinnunnar sem hefur átt sér stað í kringum síðuna felst í sjálfu miðasölukerfinu sem liggur á bakvið vefsíðuna. Það er hugsað til þess að stofna viðburði, taka út skýrslur, byggja sali, selja miða við inngang og margt fleira. Kerfið er einnig uppbyggt með þeim hætti að auðvelt er að styðjast við snertiskjá fyrir viðburði og jafnvel nota spjaldtölvur sem tengjast prentara eða posa í gegnum þráðlaust net.“Sindri Már Finnbogason.Sindri Már Finnbogason, framkvæmdastjóri Tix og aðaleigandi, segir vefinn fara hægt af stað og gera það vel og vandlega. „Vefurinn er enn í þróun en í nóvember munu fleiri viðburðir bætast við ásamt nýjungum á vefnum sjálfum. Okkar markmið er að gera miðasölu á Íslandi einfaldari, aðgengilegri og síðast enn ekki síst enn betri.“ Í tilkynningunni segir að Sindri hafi verið einn stofnenda miðasöluvefsins Miði.is en réði sig síðar til starfa fyrir Billetlugen, stærsta miðasölufyrirtæki Danmerkur. „Sindri, sem er forritari, var lykilmaður í þróun bæði Miða.is og Billetlugen. Hann hefur á undanförnum árum sett upp miðasölukerfi fyrir viðskiptavini um alla Skandinavíu; svo sem Hróarskelduhátíðina, tónlistarhúsið í Árósum, Tívolí, Danmarks Radio, Stavanger tónlistarhús í Noregi, Norsku Óperuna, Gautaborgaróperuna og fleiri.“
Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira