Forstjóri American Apparel rekinn vegna kynferðislegrar áreitni Randver Kári Randversson skrifar 19. júní 2014 16:09 Dov Charney hefur verið rekinn úr starfi forstjóra American Apparel. Vísir/AP
Bandaríski fataframleiðandinn American Apparel hefur rekið forstjóra og stofnanda fyrirtækisins, Dov Charney, vegna rannsóknar á meintri kynferðislegri áreitni hans. Þetta kemur fram á vef Reuters. Charney stofnaði fyrirtæki árið 1989, sem síðar varð American Apparel, og hafði hann verið við stjórnvölinn þar frá því fyrirtækið fór á almennan markað árið 2007. Ásakanir á hendur honum um kynferðislega áreitni komu fram árið 2011. Þá sakaði kona, sem áður hafði unnið hjá fyrirtækinu, Charney um að hafa haft hana sem kynlífsþræl meðan hún vann hjá fyrirtækinu á unglingsárum. Hún höfðaði einnig mál gegn American Apparel og stjórnendum þess fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir hegðun Charney. Fyrirtækið hefur átt í miklum erfiðleikum að undanförnu vegna dræmrar sölu og erfiðrar skuldastöðu. Talið er að þessar breytingar á stjórn þess geti valdið því að fyrirtækið geti ekki staðið við skuldbindingar sínar en viðræður við lánadrottna eru fyrirhugaðar.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira