Kynlífsfréttaskot Sigga Dögg kynfræðingur skrifar 20. maí 2014 10:15 Mynd/Getty
Í rápi mínu um netheima rekst ég gjarnan á skemmtilegar fréttir sem tengjast kynlífi á einn eða annan hátt. Stundum getur maður lent í því að festa hluti uppi í rassinum. Þessi lenti í því að nota vitlausa tegund af titrara og hann sogaðist upp í þarma og festist þar. Það er nefnilega einkennandi lögun á þeim sem er best að nota í endaþarmsörvun og er það þá einna helst breiður botn eða haldfang svo ekki sogist hann upp í garnir. Ég hef heyrt hinar ýmsu sögur frá læknum (og fólki) sem hefur fest ýmislegt uppi í rassinum á sér eins og kerti, pulsur, penna, epli og lykla. Áður en þú ferð að örva endaþarminn þá þarftu að vita hvernig hann virkar og hvernig best sé að bera sig að. Þá er alltaf gaman af smá stjörnuslúðri en það eru ýmsar stórstjörnur sem hafa „lent í“ því að kynlífsmyndband af þeim hafi lekið í fjölmiðla en þar má nefna leikara eins og Colin Farrell, Rob Lowe, Britney Spears og Jennifer Lopez. Sumar þessara stjarna vilja meina að þetta hafi gert góða hluti fyrir feril þeirra og er kannski skemmst frá því að minnast að Paris Hilton hafi orðið ansi þekkt eftir eitt slíkt myndband. Ég las einnig frétt um að stúlka hefði sett sæði í bollaköku til að hefna sín á dreng sem lagði hana í einelti. Ég læt vera áreiðanleika þessarar fréttar í ljósi þess að ekki var vitað hvað var nákvæmlega í kökunni og þeir segja grunsemdir hafa vaknað í kjölfar dularfulls bragðs. Ég leyfi mér að efast um að það sé bragð af sæði eftir bakstur. Í Bretlandi velta menn því fyrir sér hvort konur eigi að fá sérstaka greidda veikindadaga þegar þær eru á blæðingum. Slíkt tíðkast víst í Austur-Asíu, og er segir í fréttinni, þá eigi t.d. konur í Tævan rétt á þriggja daga veikindaleyfi, á ári, til viðbótar við árlegan þrjátíu daga veikindarétt (reyndar á hálfum launum). Ég læt þetta nú vera, kannski sér í lagi þar sem flestir eiga rétt á tveimur launuðum veikinda dögum í mánuði hér á Íslandi og ég sé ekki ástæðu til að sérmerkja það blæðingum en sitt sýnist hverjum. Þetta er svona næstum eins og að spóla aftur í fortíðina þegar blæðingar voru sveipaðar þvílíkri dulúð að það hálfa væri nóg. Annars er saga blæðinga mjög áhugaverð, ef þig langar að vita meira. Það er sko aldrei lognmolla í kynfræðinni!
Heilsa Mest lesið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Lífið