Tugir vindmylla gætu risið við Búrfell Svavar Hávarðsson skrifar 20. maí 2014 07:00 Rísi vindorkugarður við Búrfell gæti hann innifalið 60-70 vindmyllur sem reistar yrðu í nokkrum áföngum. Mynd/AFP
Landsvirkjun hefur í undirbúningi mat á umhverfisáhrifum fyrir vindorkugarð á Hafinu við Búrfell. Aðstæður á Íslandi eru óvenju hagstæðar fyrir raforkuvinnslu úr vindorku er reynslan af tilraunaverkefninu á staðnum. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar, segir að nýtnihlutfall vindmylla Landsvirkjunar við Búrfell, sem voru reistar fyrir rúmu ári í tilraunastigi, hafi reynst óvenju hátt. Nýtni vindmyllanna á Hafinu sé um 40% en á heimsvísu um 28%. Landsvirkjun hefur í undirbúningi mat á umhverfisáhrifum fyrir vindorkugarð á sama stað við Búrfell. „Við teljum að það séu allt að 200 megavött (MW) virkjanleg á svæðinu, en við mat á umhverfisáhrifum þarf að gefa upp tölu megavatta sem hugsanlega eru vinnanleg, svo þetta mat getur verið vel rúmt. Ef þetta yrði að veruleika myndi sú uppbygging alltaf verða í nokkrum áföngum,“ segir Óli Grétar. Má til samanburðar nefna að uppsett afl Búðarhálsstöðvar, nýjustu aflstöðvar Landsvirkjunar, er 95 MW. Vindmyllurnar tvær á Hafinu eru samtals 1,8 MW, svo allt að 200 MW vindorkugarður er allstórt skref. Verði af framkvæmdum er hugmyndin að reisa stærri vindmyllur en standa þar nú, eða allt að þrjú til 3,5 MW hver vindmylla. Miðað við 3 – 3,5 MW á vindmyllur og 200 MW framleiðslu rísa 60-70 vindmyllur á um 34 ferkílómetra svæði við Búrfell. Óli Grétar bætir við að kostnaður við vindmyllur fari lækkandi og ef sannast að aðstæður séu jafn góðar hér eins og niðurstöðurnar af Hafinu benda til, og vindmyllur verði samkeppnishæfar við stærri virkjanir, þá geti það breytt áherslum Landsvirkjunar. „Ef þetta verður arðbærara þá fer það fram fyrir aðra virkjunarkosti,“ segir Óli Grétar og bætir við að vindorkan er í dag samkeppnisfær í verði við smærri vatnsaflskosti miðað við staðsetningu á Hafinu, sem þarf ekki að gilda alls staðar á landinu. Í samhengi má nefna að könnun Capacent Gallup fyrir Landsvirkjun í fyrra sýndi að ríflega 80% aðspurðra voru fylgjandi því að reisa vindmyllur hér á landi og nýta þannig vind sem orkugjafa í meiri mæli. Engin sérstök vandamál hafa komið upp við rekstur vindmyllanna tveggja hingað til. Erlendis er fugladauði þekkt vandamál, en á Hafinu hefur það ekki komið upp. Skýringin er staðsetningin; fuglalíf er lítið á Hafinu en annað gæti verið uppi á teningnum ef vindmyllur yrðu t.d. reistar nær sjó í framtíðinni.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Samstarf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira