Viðskipti innlent

Tugir vindmylla gætu risið við Búrfell

Svavar Hávarðsson skrifar
Rísi vindorkugarður við Búrfell gæti hann innifalið 60-70 vindmyllur sem reistar yrðu í nokkrum áföngum.
Rísi vindorkugarður við Búrfell gæti hann innifalið 60-70 vindmyllur sem reistar yrðu í nokkrum áföngum. Mynd/AFP
Landsvirkjun hefur í undirbúningi mat á umhverfisáhrifum fyrir vindorkugarð á Hafinu við Búrfell. Aðstæður á Íslandi eru óvenju hagstæðar fyrir raforkuvinnslu úr vindorku er reynslan af tilraunaverkefninu á staðnum.

Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar, segir að nýtnihlutfall vindmylla Landsvirkjunar við Búrfell, sem voru reistar fyrir rúmu ári í tilraunastigi, hafi reynst óvenju hátt. Nýtni vindmyllanna á Hafinu sé um 40% en á heimsvísu um 28%.

Landsvirkjun hefur í undirbúningi mat á umhverfisáhrifum fyrir vindorkugarð á sama stað við Búrfell. „Við teljum að það séu allt að 200 megavött (MW) virkjanleg á svæðinu, en við mat á umhverfisáhrifum þarf að gefa upp tölu megavatta sem hugsanlega eru vinnanleg, svo þetta mat getur verið vel rúmt. Ef þetta yrði að veruleika myndi sú uppbygging alltaf verða í nokkrum áföngum,“ segir Óli Grétar. Má til samanburðar nefna að upp­sett afl Búðarhálsstöðvar, nýjustu aflstöðvar Landsvirkjunar, er 95 MW.

Vindmyllurnar tvær á Hafinu eru samtals 1,8 MW, svo allt að 200 MW vindorkugarður er allstórt skref. Verði af framkvæmdum er hugmyndin að reisa stærri vindmyllur en standa þar nú, eða allt að þrjú til 3,5 MW hver vindmylla. Miðað við 3 – 3,5 MW á vindmyllur og 200 MW framleiðslu rísa 60-70 vindmyllur á um 34 ferkílómetra svæði við Búrfell.

Óli Grétar bætir við að kostnaður við vindmyllur fari lækkandi og ef sannast að aðstæður séu jafn góðar hér eins og niðurstöðurnar af Hafinu benda til, og vindmyllur verði samkeppnishæfar við stærri virkjanir, þá geti það breytt áherslum Landsvirkjunar. „Ef þetta verður arðbærara þá fer það fram fyrir aðra virkjunarkosti,“ segir Óli Grétar og bætir við að vindorkan er í dag samkeppnisfær í verði við smærri vatnsaflskosti miðað við staðsetningu á Hafinu, sem þarf ekki að gilda alls staðar á landinu.

Í samhengi má nefna að könnun Capacent Gallup fyrir Landsvirkjun í fyrra sýndi að ríflega 80% aðspurðra voru fylgjandi því að reisa vindmyllur hér á landi og nýta þannig vind sem orkugjafa í meiri mæli.

Engin sérstök vandamál hafa komið upp við rekstur vindmyllanna tveggja hingað til. Erlendis er fugladauði þekkt vandamál, en á Hafinu hefur það ekki komið upp. Skýringin er staðsetningin; fuglalíf er lítið á Hafinu en annað gæti verið uppi á teningnum ef vindmyllur yrðu t.d. reistar nær sjó í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×