Tíu metra sitgagreni á Austurvöll Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2014 16:56 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ásamt Cecilie Landsverk, sendiherra Noregs á Íslandi, við grenitréð sem fellt var við Rauðavatn í dag. Mynd/Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hjó tíu metra hátt grenitré við Rauðavatn rétt eftir klukkan tvö í dag. Tréð var fellt til að prýða Austurvöll en Oslóartréð brotnaði í storminum sem gekk yfir landið í gær og nótt. Tréð er af tegundinni sitgagreni en það mun vera á milli 50 og 60 ára gamalt. „Það stóð í grenilundi í landi norðan við Rauðavatn þar sem áður var sumarhúsabyggð en er nú útmörk Reykjavíkur. Borgin plantar 18 – 25 þúsund trjám ári að mestum hluta í útmörkina fyrir ofan Rauðavatn og á Hólmsheiði þannig að þar vex nú upp myndarlegur skógur,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Cecilie Landsverk, sendiherra Noregs á Íslandi, var viðstödd skógarhöggið og lýsti yfir ánægju sinni með tréð. Greinarnar af Oslóartrénu sem brotnaði verða notaðar í jólaskreytingar í Tjarnarsal Ráðhússins. „Þá er einnig verið að skoða ýmsa möguleika á því að nýta tréð sem best, jafnvel með útskurðar- og smíðanámskeiðum fyrir börn. Starfsmenn borgarinnar fara nú í að taka niður þessa vinargjöf Norðmanna sem brotnaði í látunum í gær og stilla nýja trénu upp á Austurvelli svo allt verði klárt fyrir hátíðlega fjölskylduskemmtun sem haldin verður á Austurvelli sunnudaginn 7. desember kl. 15:30 – 17 en þá verða ljósin kveikt á nýja trénu.“
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira