Háskólafólk fær frjálsan aðgang að hugbúnaði og skýjaþjónustu Microsoft Stefán Árni Pálsson skrifar 12. desember 2014 09:00 Nemendur við Háskóla Íslands. mynd/aðsend
Allir nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands (HÍ), alls um 17 þúsund manns, munu fá endurgjaldslausan aðgang að nokkrum vinsælustu forritunum frá Microsoft, s.s. Word, Excel, PowerPoint og OneNote. Þetta felst í samkomulagi sem Reiknistofnun Háskóla Íslands (RHÍ) hefur gert við Microsoft á Íslandi. Samkomulagið felur einnig í sér aðgang að OneDrive, skýjaþjónustu Microsoft, sem auðveldar notendum að nálgast sín gögn hvar sem er og gerir auðvelt að deila skjölum eða möppum til annarra notanda. Nemendur HÍ fá nú aðgang að bæði hefðbundnum og netútgáfum af vinsælustu forritunum frá Microsoft, sem þýðir að þeir geta unnið með þau á sínum tölvum bæði í gegnum vafra og sem uppsett forrit. Starfsmenn HÍ fá aðgang að netútgáfum sömu forritanna en geta einnig óskað sérstaklega eftir hefðbundinni uppsetningu á forritunum í tölvum sínum.Breyttar áherslur á hugbúnaðarmarkaði Aðgangur að hugbúnaði er í auknum mæli veittur í gegnum netið og sífellt fleiri kjósa að greiða lága upphæð í fast mánaðargjald fyrir aðgang að hugbúnaði í stað þess að kaupa nýjar útgáfur til eignar. Slík áskriftarþjónusta felur í sér að notendur fá ávallt bestu og nýjustu útgáfu hugbúnaðarins. Nær allur hugbúnaður frá Microsoft er nú vistaður í skýinu og er aðgengilegur í ólíkum tækjum í gegnum vafra. Samningurinn við RHÍ er í samræmi við stefnu Microsoft um að veita nemendum og starfsmönnum í háskólum um allan heim greiðan aðgang að nýjustu útgáfum af vinsælasta hugbúnaði fyrirtækisins. Slíkir samningar standa háskólum til boða sem leigja og kaupa annan hugbúnað frá Microsoft. Nýherji, samstarfsaðili Microsoft á Íslandi, annaðist uppsetningu á Office 365 hjá Háskóla Íslands.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira