Grænt ljós á samruna 365 og Tals Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. desember 2014 15:34 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, segir spennandi tíma framundan, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk sameinaðs félags. Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Tals, tekur undir með Sævari. Vísir
365 miðlar og Tal hafa nú sameinast undir merki 365. Samkeppniseftirlitið heimilaði samruna félaganna í dag. Starfsmenn Tal munu flytja í höfuðstöðvar 365 í Skaftahlíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá 365 en starfsmönnum var kynnt um tíðindin á fundi síðdegis í dag. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, segir spennandi tíma framundan, bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk sameinaðs félags. Hann segir að í kjölfar þessarar sameiningar verði unnt að bjóða skemmtilegar nýjungar, sem ekki hafi sést áður á fjarskiptamarkaðnum, neytendum til hagsbóta.Sævar Freyr Þráinsson.„Miklar breytingar eru að verða á afþreyingar- og fjarskiptamarkaði og sameinuð munu félögin geta boðið viðskiptavinum sínum upp á spennandi lausnir. Til að mynda eru miklar breytingar framundan á dreifingu sjónvarpsefnis þar sem snjalltæki eru í auknum mæli að taka við hlutverki hinna hefðbundnu myndlykla.“ Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Tals, tekur undir með Sævari. „Þetta hefur verið langt og strangt ferli og það er mikið ánægjuefni fyrir starfsmenn félaganna að nú hafi samruninn verið samþykktur. Ég hlakka til að setjast í framkvæmdastjórn sameinaðs félags og starfa á ný með Sævari forstjóra. Við erum þess líka fullviss að viðskiptavinir okkar verði ánægðir þegar í ljós kemur hvað þeim muni standa til boða. Hér eru að sameinast félög sem geta boðið upp á spennandi samspil afþreyingar og fjarskipta,“ segir Petrea.Petrea Ingileif Guðmundsdóttir.Eina áþreyfanlega breytingin fyrir viðskiptavini félaganna fyrst í stað er sú að Tal mun flytja með skrifstofu og verslun úr Grímsbæ í höfuðstöðvar 365 í Skaftahlíð. Þar með verður stigið fyrsta skrefið í að samþætta þjónustu beggja fyrirtækjanna. Viðskiptavinir 365 og Tals nota sömu samskiptaleiðir og áður til að hafa samband við fyrirtækin. Viðskiptavinir 365 hringja áfram í 512-5100 og fara inn á 365.is til að nálgast upplýsingar um vörur og þjónustu. Það sama gildir um viðskiptavini Tals, þeir hringja áfram í 1817 og fara inn á tal.is. Nýjar áherslur sameinaðs félags verða kynntar strax á nýju ári.
Tengdar fréttir 365 og Tal ræða sameiningu 365 miðlar hafa lýst því yfir að félagið ætli sér inn á fjarskiptamarkaðinn af fullum krafti og hefur fyrirtækið meðal annars hafið sölu á nettengingum fyrir heimili. Áformað er að hefja 4G farsímaþjónustu á komandi misserum. 22. júlí 2014 09:20 Hagnaður 365 miðla var 746 milljónir á síðasta ári Hagnaðurinn nam um 305 milljónum króna árið 2012. 8. október 2014 18:41 Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira
365 og Tal ræða sameiningu 365 miðlar hafa lýst því yfir að félagið ætli sér inn á fjarskiptamarkaðinn af fullum krafti og hefur fyrirtækið meðal annars hafið sölu á nettengingum fyrir heimili. Áformað er að hefja 4G farsímaþjónustu á komandi misserum. 22. júlí 2014 09:20
Hagnaður 365 miðla var 746 milljónir á síðasta ári Hagnaðurinn nam um 305 milljónum króna árið 2012. 8. október 2014 18:41