Milljónir í eingreiðslur til forstjóra ríkisfyrirtækja Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 27. september 2014 00:01 vísir/gva
Nokkrir forstjórar og forstöðumenn ríkisstofnana fengu milljónir í eingreiðslu eftir að kjararáð hafði lækkað laun þeirra árið 2010. Launin voru lækkuð í kjölfar lagasetningar fyrrverandi ríkisstjórnar um að þau skyldu ekki vera hærri en laun forsætisráðherra. Alls fengu ákveðnir forstjórar rúmlega 31 milljón í eingreiðslu sem er mismunur greiðslna á uppsagnartíma þess ráðningarsamnings, sem í raun var sagt upp þegar ákveðið var að lækka laun þeirra, og úrskurðar kjararáðs um lækkunina. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins ríkti mikil óvissa um það hvernig fara skyldi með launagreiðslur í kjölfar þessarar breytingar hjá fyrirtækjum í eigu ríkisins. Svo mikil að í sumum tilfellum var óskað eftir fleiri en einu lögfræðiáliti. Allir þeir sem fengu slíkar eingreiðslur leituðu fyrst sérfræðiálits lögfræðinga áður en stjórnir fyrirtækjanna tóku ákvörðun. Sem dæmi má nefna að forstjóri Landsnets hf. fékk rúmlega 8,5 milljóna eingreiðslu og forstjóri Íslandspósts hf. fékk rúmar 5,5 milljónir. Útvarpsstjóri fékk um 4,6 milljónir, forstjóri Matís 4,1 og forstjóri RARIK ohf. fékk rúmar 3,7 milljónir.Úrskurðir kjararáðs um hvernig skyldi fara með greiðslu á uppsagnarfresti forstöðumanna ríkisstofnana þóttu óljósir. Fréttablaðið/GVAUm aðra forstjóra giltu ekki sömu reglur, þeirra laun voru lækkuð strax og lögin tóku gildi og ekki var tekið tillit til uppsagnarfrests. Þeirra á meðal eru forstjóri Fjármálaeftirlitsins, forstjóri Landspítalans og Samkeppniseftirlitsins. Þessir aðilar öfluðu ekki lögfræðiálits. Hið sama gilti um framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs en stjórn sjóðsins fékk þó lögfræðiálit þar sem niðurstaðan var sú að virða bæri uppsagnarfrest framkvæmdastjórans. Stjórnin taldi sig samt sem áður bundna af úrskurði kjararáðs og fylgdi því ekki álitinu. Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, segir málið hafa verið óhemju flókið og það hafi verið í mismunandi farvegi eftir fyrirtækjum. „Þetta var auðvitað engan veginn einfalt. Þarna var verið að reyna að finna leiðir til að allir tækju á sig lækkun og þeir hæstlaunuðu mest,“ segir Steingrímur. Hann segir ráðningarsamband forstöðumanns hlutafélags í eigu ríkisins ólíkt ráðningarsambandi opinbers embættismanns við ríkið. Þannig hafi verið komist að því að lagaleg staða þeirra hafi verið slík að virða bæri uppsagnarfrest þeirra og greiða mismuninn.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira