Svipmynd Markaðarins: Vann um tíma sem flugfreyja hjá Atlanta Haraldur Guðmundsson skrifar 25. október 2014 10:00 Þorgerður er fædd og uppalin á Húsavík og segist vita fátt betra en að eyða sumarfríinu fyrir norðan. Vísir/GVA „
Þetta er spennandi starfsvettvangur í smásölugeiranum sem ég þekki vel og tengist líka ferðalögum og ferðamönnum sem er mjög vaxandi markaður á Íslandi,“ segir Þorgerður Þráinsdóttir, nýráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar. Þorgerður starfar í dag sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs Lyfju en mun fara yfir til Fríhafnarinnar á næstu vikum. „Þetta er afar athyglisverður starfsvettvangur og velta Fríhafnarinnar hefur vaxið á undanförnum árum og stefnir í að fara upp í átta milljarða króna á þessu ári. Farþegum um Keflavíkurflugvöll er að fjölga mikið og það er áskorun fyrir Fríhöfnina sem verður spennandi að takast á við,“ segir Þorgerður. Hún er stúdent frá Framhaldsskólanum á Húsavík og með BA- og Cand.psych-gráður í sálfræði frá Háskóla Íslands. Einnig lauk hún PMD-stjórnendanámi frá Opna háskólanum í Reykjavík í fyrra. „Ég starfaði sem flugfreyja hjá Atlanta með námi og á sumrin frá 1998-2003,“ segir Þorgerður þegar blaðamaður spyr um hennar fyrri störf. Hún nefnir einnig starf við ráðgjöf hjá fyrirtækinu IBM Consulting Services sem er í dag hluti af PwC á Íslandi. „Svo var ég ráðin starfsmannastjóri Lyfju árið 2003 og ég sinnti því starfi í sjö ár eða þangað til ég tók við verslana- og markaðssviðinu,“ segir Þorgerður. Hún hefur nú yfirumsjón með daglegum rekstri verslana Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins og sér því um öll innkaup, samninga við birgja og auglýsinga- og markaðsmál. Þorgerður er gift Ingvari Jóhanni Kristjánssyni viðskiptafræðingi og þau eiga þrjú börn á aldrinum fimm til sjö ára. „Frítíminn fer mikið í fjölskylduna. Ég eignaðist þrjú börn á innan við tveimur árum sem var pínu erfitt en það er allt að verða mun einfaldara núna,“ segir Þorgerður og hlær. „En ég hef einnig áhuga á líkamsrækt og ýmiss konar hreyfingu. Ég þarf líka að fara að dusta rykið af golfkylfunum. Þær fóru aðeins á hilluna þegar ég eignaðist börnin. Svo finnst mér gaman að elda og spá í uppskriftir og gera eitthvað nýtt og spennandi í þeim málum.“Unnur SteinssonUnnur Steinsson, vörustjóri Lyfju „Við Þorgerður höfum verið samstarfsaðilar og vinkonur í ein níu ár eða allt frá því hún réð mig til Lyfju árið 2005. Þorgerður er einstaklega greind kona, hefur gríðarlegan metnað í að gera vel og á mjög auðvelt með að setja sig inn í nýja hluti og tileinka sér ný störf. Ég veit ekki hvort það liggur í grunnmenntuninni eða ekki, en ég held að störf hennar í hinum ýmsum menningarheimum og heimshlutum fyrir háskólaárin hafi kennt henni að lesa vel í umhverfi sitt og skilja aðstæður betur en aðrir. Hún er algjört tækjanörd og mikill fagurkeri, finnst gott að borða góðan mat, drekka eðalvín og kaupa falleg föt, elskar allt með glimmeri. Frábær manneskja sem verður sárt saknað!“Kolbrún ÞorkelsdóttirKolbrún Þorkelsdóttir, lögfræðingur hjá Völvu lögmönnum „Þorgerður, eða Dæja eins og ég kalla hana, er nagli, traust, klár, skemmtileg, pottþétt og svo miklu meira til. Hún er einhver skipulagðasta manneskja sem ég þekki og það er draumur hverrar „þetta reddast“-týpu að ferðast með henni. Löngu fyrir brottför er hún búin að mastera lestakerfi áfangastaðanna og er orðin vel upplýst um bestu verslanirnar og lagerstöð þeirra (í alvöru). Dæja er fáránlega tæknivædd og hugsar vel um sitt, hún verður komin með Apple-úrið á úlnliðinn áður en við vitum af og á sennilega einn snyrtilegasta fjölskyldubíl á landinu. Hún hefur alla tíð stefnt hátt og ég held að við séum rétt að byrja að fylgjast með flottu flugi hennar.“
Mest lesið Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Viðskipti innlent Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Viðskipti erlent „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Viðskipti innlent Sleppir ekki pítsunum þrátt fyrir eitt óhappatilvik Neytendur Trendin 2026: Gervigreindin mikilvæg og laun mögulega auglýst Atvinnulíf Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Reiknivél sem sýnir áhrif breytingar á samsköttun Neytendur Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent