Krumma elskar egg og beikon Birta Björnsdóttir skrifar 25. ágúst 2014 09:45
Dúfur og kanínur koma oftar en ekki fyrir í atriðum töframanna en öllu sjaldgæfara er að krummum bregði þar fyrir. Það gæti þó orðið breyting þar á þar sem þessari hér er ýmislegt til lista lagt. „Ég hef lengi verið mikill fuglaáhugamaður og hef meðal annars þjálfað dúfur,“ segir Einar Mikael, töframaður, sem þjálfað hefur Krummu undanfarna mánuði. „Ég frétti af mjög gæfum hrafni sem bjó að Vatnsholti og ákvað að kíkja í heimsókn. Ég sá fljótlega að Krumma gæti ýmislegt og fékk leyfi til að þjálfa hana.“ Krumma kann nú ýmis töfrabrög og kann einnig að segja nokkur orð, meðal annars heyrðu og hæ. Hvort sem það var vegna þess að þetta var hennar fyrsta sjónvarpsviðtal eða ekki skal ósagt látið en hún var ófáanleg til að segja orð, þó hún sýndi hljóðnemanum mikinn áhuga. Og Krumma nýtist töframanninum vel, hún kann að draga spil og sveifla töfrasprota svo fátt eitt sé nefnt, en Krumma kemur fyrir í nýjum sjónvarpsþáttum Einars Mikaels sem væntanlegir eru í næsta mánuði. „Þetta eru frábær dýr, svo gáfuð og gæf. Hrafninn er líka svo íslenskur og það er gaman að geta vekið meiri athygli á honum með þessum hætti,“ segir Einar Mikael. Og eftir allt erfiðið var Krummu boðið upp á uppáhalds matinn sinn, beikon og hrátt egg í glasi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira