Metanráðstefna á Íslandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. ágúst 2014 11:27 Ísland er eina Evrópulandið þar sem metan er notað beint af urðunarstað sem eldsneyti á ökutæki eftir að hafa farið í gegnum metan hreinsistöð SORPU í Álfsnesi.
Miðvikudaginn 27. ágúst verður Norræna Biogas ráðstefnan sett í Reykjavík. Þetta er í fyrsta skipti sem ráðstefnan er haldin hér á landi en hana sækja margir af helstu alþjóðlegu sérfræðingum um lífrænt metan. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Íslendingar hafa nokkra sérstöðu í framleiðslu og nýtingu á lífrænu metani því Ísland er eina Evrópulandið þar sem metangas er notað beint af urðunarstað sem eldsneyti á ökutæki. Þess má geta að með nýrri gas-og jarðgerðarstöð sem SORPA áformar að reisa í Álfsnesi á næstu misserum mun framleiðsla á lífrænu metani úr úrgangi tvöfaldast hér á landi að því er segir í tilkynningunni. Þetta verður jafnframt stærsta fjárfesting sem SORPA hefur ráðist í frá stofnun. Gert er ráð fyrir að á þriðja hundrað þátttakendur sæki ráðstefnuna að þessu sinni, alls staðar að úr heiminum. Ráðstefnan verður á Hilton Nordica hótelinu í Reykjavík og sér SORPA um skipulagningu hennar með erlendum samstarfsaðilum. Nordic Biogas ráðstefnan er stærsti vettvangurinn á Norðurlöndunum þar sem kynntar eru nýjustu rannsóknir og tækniframfarir við framleiðslu og notkun á lífrænu metani. Á ráðstefnunni er fjallað um flest allt sem viðkemur metani, svo sem ólíkum aðferðum við vinnslu og nýtingu lífræns metans, hráefni til gasgerðar, hreinsun á hauggasi, um notkun metans til rafmagns- eða varmaframleiðslu, fljótandi eða þjappað metan (LNG/CNG), notkun við land- og sjóflutninga auk þess sem notkun á aukaafurðum eins og meltuvökva og jarðvegsbæti eru einnig gerð skil. Umhverfisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson mun opna ráðstefnuna með ávarpi kl. 10:30 á miðvikudagsmorgun. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni eru tveir íslenskir vísindamenn þeir Magnús Guðmundsson, fagstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sem mun gera grein fyrir aðferðum sem notaðar hafa verið hér á landi til að örva metanframleiðslu og Guðmundur Ólafsson frá verkfræðistofunni Mannviti sem fjallar um framleiðslu á gæða metani úr urðunarstaðnum í Álfsnesi. Af öðrum fyrirlestrum sem fluttir verða á Nordic Biogas ráðstefnunni að þessu sinni má nefna að Panyamee Schakamol frá Tailandi mun greina frá rannsókn á notkun þörunga til framleiðslu metans. Henrik B. Möller frá Danmörku kynnir vinnslu á metani úr blöndu af mykju og grasi og David Baxter, frá rannsóknarstofnun EU (European Commission JRC) mun fjalla um þróun í framleiðslu metans í þeim löndum sem tilheyra alþjóða orkumálastofnuninni (IEA). Þá mun Jörgen Held frá Svíþjóð gera grein fyrir mismunandi uppruna og framleiðslu á metani. Í tengslum við ráðstefnuna verður sýning þar sem kynnt verða verkefni og ýmsar vörur sem tengjast nýtingu metans. Dagskrána á miðvikudaginn má sjá hér.
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira