Róbert stefnir Viðskiptablaðinu: "Ærumeiðandi aðdróttun“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. september 2014 12:48 Róbert Wessman stefnir Viðskiptablaðinu.
Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, hefur stefnt ritstjóra Viðskiptablaðins, Bjarna Ólafssyni, vegna fréttar sem birtist í lok síðasta mánaðar. Fréttin fjallar um stefnu Björgólfs Thors Björgólfssonar á hendur Róberti, en Vísir greindi fyrst frá málinu. Róbert svaraði stefnunni með því að senda ísfötuáskorun á Björgólf Thor, „enda virðist hann þurfa smá kælingu,“ sagði Róbert í ágúst. Róbert telur fyrirsögn á frétt Viðskiptablaðsins sé „ósönn og verulega meiðandi,“ eins og hann segir í yfirlýsingu um stefnuna. Á forsíðu blaðsins var því haldið fram að hann hefði dregið sér fé sem forstjóri Actavis. Í stefnunni kemur fram að Róbert krefjist þess að vera dæmdar tvær milljónir króna í miskabætur. Auk þess fer hann fram á að sér verði greiddar um 1,4 milljónir króna til að kosta birtingu dóms í málinu, með áberandi hætti í tveimur víðlesnum dagblöðum. Í stefnunni segir að blaðamaður Viðskiptablaðsins hafi haft samband við samstarfsmann Róberts. „Í samtalinu kom fram að stefnandi hafnaði alfarið þeim ásökunum sem koma fram í stefnunni og að í henni væri farið rangt með helstu atvik málsins og að enginn fótur væri fyrir kröfum Björgólfs Thors.“„Ærumeiðandi aðdróttun“ Í stefnu Róberts á hendur ritstjóra Viðskiptablaðsins segir einnig: „Stefnanda var því brugðið þegar hann sé frétt á vefmiðli Viðskiptablaðsins, vb.is, að kvöldi 27. ágúst með millifyrirsögninni „Tóku fjármuni ófrjálsri hendi“ þar sem í stuttu máli var vikið að framangreindri stefnu. […] Þá um kvöldið hafði samstarfsmaður stefnanda samband við Viðskiptablaðið og benti enn á að stefnan væri tilefnislaus og að rangt væri farið með, auk þess sem umrædd millifyrirsögn fæli í sér ærumeiðandi aðdróttun. Leiddi það til þess að skömmu síðar var fréttinni var breytt á vefmiðlinum, þ.e. millifyrirsögninni breytt […]. Þrátt fyrir þetta birtist enn grófari fyrirsögn á forsíðu Viðskiptabalðsins þann 28. Ágúst síðastliðinn þsem stefnandi krefst ómerkingar á í máli þessu. […] aðalfrétt forsíðunnar ber heitið: „Björgólfur kærir Róbert.“ Þar segir að Björgólfur Thor hafi bæði stefnt og kært stefnanda og telji sig hafa orðið fyrir verulegu fjártjóni. Svo segir á forsíðunni: Sakar róbert um að hafa dregið sér fé frá Actavis.“ Það eru þessi síðastgreind ummæli sem stefndandi krefst ómerkingar á með stefnu þessari.Hér má sjá umrædda forsíðu.Erlendir samstarfsaðilar geta haft aðgang að umfjöllun Í yfirlýsingu sem Róbert Wessman sendi frá sér vegna fréttar Viðskiptablaðsins segir: „Ég hef oft verið umfjöllunarefni fjölmiðla í starfi mínu sem forstjóri undanfarin 15 ár. Umfjöllunin hefur yfirleitt verið vel unnin og af sanngirni.Umfjöllun Viðskiptablaðsins þann 28. ágúst síðastliðin er þó á annan veg en þar er ég sakaður um alvarlegt brot í starfi. Það er ekki bara fjölskylda, vinir og samstarfsmenn á Íslandi sem lesa umfjöllun um mig sem birtist hér á landi. Ég starfa í alþjóðlegu umhverfi þar sem samstarfsaðilar og keppinautar geta hæglega haft aðgang að slíkri umfjöllun.Viðskiptablaðið tók ákvörðun um að birta umfjöllun um stefnu Björgólfs Thor Björgólfssonar á hendur mér áður en málið hafði verið þingfest og ég fengið gögn stefnanda í hendur. Þetta gerir blaðið þrátt fyrir að blaðamaður og ritstjóri hafi báðir verið upplýstir í samskiptum við samstarfsmenn mína að málatilbúnaður sá sem í stefnunni birtist væri algjörlega tilhæfulaus. Það hefði verið hægðarleikur fyrir blaðið að sannreyna að stefnan var ekki byggð á traustum grunni. Blaðið gerir þó meira en að endurflytja ósannar ásakanir sem í stefnunni birtust því á forsíðu er fullyrt að ég sé sakaður um að hafa dregið mér fé sem forstjóri Actavis. Þeir sem lesa stefnuna sjá að enga slíka ásökun er að finna í stefnunni.“Stefnan frá árinu 2007Stefna Björgólfs á hendur Róberti snýst um deilur vegna viðskipta sem þeir stunduðu saman árið 2007. Björgólfur fer fram á tvær milljónir evra, eða rúmlega 300 milljóna króna, í skaðabætur vegna viðskiptanna. Björgólfur stefnir einnig Árna Harðarsyni, sem ásamt Róberti var forsvarsmaður fyrirtækisins Salt Investment ehf. Fyrirtæki í eigu Björgólfs, Novator Pharma, og dótturfyrirtæki Salt Investment, Salt Pharma, voru í jöfnum hlutföllum eigendur félegsins Mainsee Holding. Þann 7. september 2007 var gerður samningur sem fól í sér að Mainsee, í eigu fyrirtækja Róberts og Björgólfs, keypti samheitalyfjarekstur og vörulager fyrirtækisins DeltaSelect. Björgólfur telur að fjármunir, eins og kemur fram í stefnunni, sem hann hafi átt tilkall til hafi hafi ekki skilað sér til hans.Stefnan „tilhæfulaus með öllu“Þegar Vísir fjallaði um stefnuna í ágúst sagði Róbert Wessman að hann teldi stefnuna með öllu tilhæfulausa: „Enn og aftur fara spunameistarar Björgólfs Thors Björgólfssonar af stað og í þetta skiptið er sett fram tilefnislaus stefna sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Björgólfur Thor er oft hugmyndaríkur þegar kemur að því að spinna sögur og í þetta skiptið fer hann af stað með málatilbúnað sem hefur það eina markmið að slá ryki í augu almennings,“ sagði hann. Í fréttinni í ágúst var einnig vísað í skriflegt svar forsvarsmanna Salt Investment. Þar kom fram að þeir tækju til varna þrátt fyrir að skilja ekki á hverju stefnan er byggð. „Við skiljum ekki stefnuna eða á hverju hún er byggð en verðum náttúrulega að taka til varna og höfum ekki áhyggjur af niðurstöðunni. Hins vegar mun Róbert, úr því að Björgólfur var svo friðlaus yfir því að eiga ekki í dómsmáli við hann, gera gagnkröfur í málinu á Björgólf sem eru mun hærri. Allir vita að Róbert vann dómsmál á hendur Novator uppá 40 milljónir evra sem ekki var hægt að innheimta hjá félaginu. Eigendur Salt Investments töldu sig þá ekki geta svarað frekari spurningum um stefnuna vegna þess að þeir skildu ekki á hverju hún er byggð. „Við viljum ekki flytja málið í fjölmiðlum, en viljum þó taka fram að málsatvikum er rangt lýst í stefnunni og ísfötubað gæti hjálpað Björgólfi við þessar aðstæður“
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira