Lífið

"Ég er B-manneskja að reyna að fúnkera í A-rútínu“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
mynd/úr einkasafni
Nafn?

Anna Hafþórsdóttir



Aldur?

26 ára

Starf?

Leikkona og tölvunarfræðinemi. Er sumarstarfsmaður hjá Þekkingu.

Maki?

Ég er einhleyp.

Stjörnumerki?

Vatnsberi.

Hreyfing?

Víkingaþrek í Mjölni.

Uppáhaldslistamaður?

Meryl Streep, hún er svo góð og skemmtileg leikkona að ég veit stundum ekki hvað ég á að gera við mig. Svo eru Kraftwerk uppáhalds tónlistarmennirnir mínir.

Uppáhaldsmynd?

Sko…ég get ekki valið eina. Vicky Cristina Barcelona finnst mér frábær. Shining er einhvern vegin alltaf pínu uppáhalds en ég er líka mikið fyrir ævintýramyndir eins og Lord of the Rings, Harry Potter og Hunger Games.

A- eða B-manneskja?

Ég er B-manneskja að reyna að fúnkera í A-rútínu. Tekur stundum á. Ég var samt Súper A-týpa þegar ég var barn þannig að ég er að vona að upp úr þrítugu breytist ég aftur í A…veit ekki alveg hver rökin fyrir því eru samt…






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.