Slegist um humarinn í Þorlákshöfn Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 18. júlí 2014 23:29
Það er mikið líf í einu af frystihúsi Auðbjargar í Þorlákshöfn þessa dagana því þar er um 60 manns, flestir skólakrakkar að vinna í humri frá sjö á morgnanna og fram á kvöld og líka er unnið um helgar. Bátar Auðbjargar, Ársæll og Arnar hafa verið á humar- og makrílveiðum og mokað upp þessum tegundum, ekki síst humrinum. „Við erum langt komnir með okkar kvóta, bara búið að vera fínn humar og góð veiði, lítið um þessar eyður sem stundum hafa komið, eða dottið niður veiði, það hefur gerst eina viku en annars er bara búin að vera bullandi veiði“, segir Gísli Eiríksson, verkstjóri hjá Auðbjörgu. En hvað verður um humarinn? „Heili humarinn fer allur á Spán og á það svæði en halarnir á Kanada og innanlandsmarkað“, bætir Gísli við. Hann segir að mikil eftirspurn sé eftir humri. „Já, gríðarlega mikil og fá færri en vilja, við gætum selt alveg tvöfalt magn. Ástæðan er sú að innanlandsmarkaðurinn kallar eftir humri, það eru sjálfsagt útlendingarnir, sem kaupa humar á veitingahúsum og svo er verið að borða þetta út um allan heim“. Grunnskóla- og framhaldskólanemendur úr Þorlákshöfn og nágrenni vinna í humrinum og þéna þar góðan pening, eru að fá 150.000 krónur og stundum meira eftir skatta fyrir hálfan mánuð. „Þau hafa töluvert upp úr þessu, þetta er mikil vinna og þau fá að vinna mikið og fá gott fyrir,“ segir Gísli og bætir því við að það sé mjög skemmtilegt að vinna þegar stemmingin er eins góð og núna á humarvertíðinni í Þorlákshöfn. „Já, alveg meiriháttar, maður vaknar brosandi og sofnar meðvitundarlaus af þreytu og með bros“.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira