Svipmynd Markaðarins: Ætlar að sjá Gunnar Nelson í Svíþjóð Haraldur Guðmundsson skrifar 3. október 2014 13:00 Rúnar Árnason var 29 ára gamall þegar hann tók við starfi framkvæmdastjóra Glerborgar. Vísir/GVA „
Ég rak áður Glerslípun og speglagerð sem var minna fyrirtæki í þessum bransa og elsta glerfyrirtæki landsins stofnað árið 1922,“ segir Rúnar Árnason, framkvæmdastjóri Glerborgar, spurður hvernig það kom til að hann fór að stýra fyrirtækinu í september í fyrra. Rúnar hafði starfað sem framkvæmdastjóri Glerslípunar og speglagerðar í þrjú ár þegar hann ákvað ásamt föður sínum að kaupa Glerborg og sameina fyrirtækin. „Við stukkum á tækifærið þegar við sáum að fyrirtækið var til sölu. Það hefur gengið nokkuð vel að fara inn í þetta hlutverk en það var að mörgu að huga,“ segir Rúnar. Hann er stúdent frá Verslunarskóla Íslands og lauk námi í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2007. Eftir það lá leiðin í Háskólann í Reykjavík en Rúnar útskrifaðist þaðan með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja árið 2009. „Þá datt ég inn í laxeldisfyrirtækið Fjarðalax og tók þátt í þeirri uppbyggingu frá byrjun en það fyrirtæki var stofnað haustið 2009. Þá sinnti ég einnig starfi framkvæmdastjóra Glerslípunar og speglagerðar en við kaupin á Glerborg var ekki nægur tími til að sinna öllum þessum verkefnum og ég fór því á fullt í glerið. En það var góð reynsla að taka þátt í þessu þarna fyrir austan enda Fjarðalax frábært fyrirtæki.“ Rúnar segir að verkefnum fyrirtækisins hafi fjölgað mikið á þessu ári og nefnir framkvæmdir við hótel og önnur verkefni sem nú eru í gangi í byggingariðnaði. Hann nefnir sem dæmi framkvæmdir við hótel Íslandshótela við Höfðatorg. „Þar sjáum við um alla sturtuklefa, spegla og gler. Það er heljarinnar framkvæmd enda 320 herbergi. Hvað svo sem hver segir um hótelbyggingar og hvernig þetta endar allt saman er vöxtur í ferðamannabransanum stór partur af okkar starfi núna,“ segir Rúnar. Hann æfði lengi körfubolta með Fjölni og segir að sá frítími sem hann hafi fari meðal annars í bumbubolta með félögunum. „ Þetta er fínn tími til að hitta félagana og hreyfa sig í leiðinni. Svo er ég alltaf að verða meiri og meiri áhugamaður um blandaðar bardagalistir. Ég er einmitt að fara til Svíþjóðar að sjá Gunnar Nelson næstu helgi. Ég er mjög spenntur fyrir þeim bardaga og hef tröllatrú á okkar manni.“Ólafur Páll ÁrnasonÓlafur Páll Árnason, ráðgjafi hjá AGR ehf. „Ég kynntist Rúnari fyrir 16 árum þegar ég mætti á körfuboltaæfingu í nýju hverfi og hann setti þrist í andlitið á mér. Frá þeim degi höfum við deilt aragrúa af góðum stundum og lífsreynslu saman í gegnum skóla, íþróttir, ferðalög og heimspekilegar samræður um tónlist og lífið sjálft. Einn af hans helstu kostum er sá hversu traustur vinur hann er. Hann er alltaf til í að réttaa hjálparhönd eða standa í veseni þegar vinur þarf á honum að halda. Það kemur ekkert á óvart að Rúnar sé farinn að láta að sér kveða í atvinnulífinu enda fæddist maðurinn með gott auga fyrir viðskiptatækifærum. Hann sýnir frumkvæði og hefur metnað fyrir því að skila öllu vel af sér sem hann tekur sér fyrir hendur.“Kristín Helgadótir, starfsmannastjóri FjarðalaxKristín Helgadóttir, starfsmannastjóri Fjarðalax „Fyrstu kynni mín af Rúnari voru þegar ég hóf störf hjá Fjarðalaxi sem var þá lítið fyrirtæki í uppbyggingarfasa. Rúnar sá um bókhaldið og launin og innleiddi margt af því sem við notum enn í dag. Rúnar sló mig strax vel, hann er skemmtilegur, afar vel gefinn og skarpur, einstaklega lausnamiðaður. Hann er með mjög góðan húmor og sá alltaf spaugilegar hliðar á frekar þurru viðfangsefni. Það var sama hvert viðfangsefnið var, Rúnar leysti alltaf strax og vel úr hlutunum. Eftir að Rúnar varð forstjóri Glerborgar hætti hann að vinna fyrir Fjarðalax sökum anna en við höfum þó ekki alveg sagt skilið við hann, því hann starfar með okkur í eldisstöðinni Ísþór og sér um launin þar.“
Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent