Fyrrverandi meðlimur Destiny's Child handtekinn Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 21. júlí 2014 15:30
Farrah Franklin, fyrrverandi meðlimur stúlknasveitarinnar Destiny's Child, var handtekin í gærmorgun fyrir óstýriláta hegðun í Conway í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Farrah var meðlimur sveitarinnar í fimm mánuði árið 2000. Hún var ráðin sem aukaleikari í tónlistarmyndband við lagið Bills, Bills, Bills árið 1999 og kynntist þar meðlimum sveitarinnar, Kelly Rowland, Beyoncé Knowles, LeToya Luckett og LaTavia Roberson. Þá tilheyrði Farrah sveitinni Jane Doe sem var við það að leggja upp laupana. Í desember árið 1999 bauð Matthew Knowles, þá umboðsmaður sveitarinnar, Farrah og Michelle Williams að ganga í Destiny's Child í staðinn fyrir LaTavia og LeToya. Þær tvær voru kynntar til sögunnar í myndbandi við lagið Say My Name. Farrah lét ekki sjá sig á nokkrum viðburðum sem sveitin átti að troða upp á og því neyddust hinir hljómsveitarmeðlimirnir til að reka hana úr hljómsveitinni. Farrah var sleppt úr varðhaldi á sunnudag en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún er handtekin. Hún var einnig tekin fyrir óstýriláta hegðun í Kaliforníu árið 2011. Nokkrum klukkutímum fyrir handtökuna birti hún meðfylgjandi mynd af sér á Instagram þar sem hún sést njóta lífsins á ströndinni. Nokkrum klukkutímum eftir handtökuna birti hún síðan þessa mynd og skrifaði við hana: „Ég er góð, hata bara heimsku fjölmiðlana stundum en þetta er starfið sem ég skráði mig til að vinna. Þannig að ég virði það.“Farrah ásamt Kelly Rowland, Beyoncé Knowles og Michelle Williams.vísir/gettyEftir að Farrah yfirgaf Destiny's Child hóf hún sólóferil. Hún fékk samning við Fo-reel Entertainment, sem síðar var rift, og tók upp lagið Get at Me með Method Man. Hún hóf einnig leiklistarferil og lék meðal annars í kvikmyndinni The Brewster Project árið 2004. Þá hefur hún setið fyrir í auglýsingaherferð fyrir Def Jam University, fatalínu Russells Simmons.
Mest lesið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Stjörnum prýtt svitapartý Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Tónlist Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Bíó og sjónvarp Harington tekur við af uppteknum Hoult Bíó og sjónvarp Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Fleiri fréttir Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Sjá meira