Spáð er 2,7 prósent hagvexti Stefán Árni Pálsson skrifar 14. nóvember 2014 09:54 vísir/hari
Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út þjóðhagsspá á vetri í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin nær til áranna 2014-2018. Í henni er m.a. gert ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 2,7% á þessu ári og 3,3% 2015 en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði 2,7% árið 2014, 3,3% árið 2015 en 2,5-2,9% árin 2016 til 2018. Fjárfesting er talin aukast um 14% árið 2014, 18,7% árið 2015 og 14,6% árið 2016, en gert ráð fyrir að stóriðjufjárfesting dragist saman árin 2017 og 2018 sem leiðir til þess að fjárfesting stendur í stað þau ár. Einkaneysla jókst lítið 2013 en reiknað er með að hún aukist um 3,9% 2014, 4% árið 2015 en um og yfir 3% á ári eftir það. Hóflegur vöxtur samneyslu verður á fyrstu árum spátímans eða 1,8% árið 2014 og um 1,5% árlega eftir það. Mikill vöxtur neyslu og fjárfestingar árin 2014-2016 leiðir til þess að þjóðarútgjöld aukast um 4,7% árið 2014, 5,6% árið 2015, 5,1% árið 2016 en mun minna eftir það. Verðbólga verður 2,2% árið 2014, nokkuð undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Spáð er að verðbólga verði 2,7% árið 2015, 3% árið 2016 en fari í 2,6% árið 2018. Vöru- og þjónustujöfnuður verður jákvæður allan spátímann en minnkar með aukinni neyslu og fjárfestingu. Í tilkynningunni kemur fram að talsverð óvissa sé um þróun launa og verðlags árið 2015 vegna kjarasamninga sem þá losna. Gert er ráð fyrir nokkru meiri launahækkunum á almennum vinnumarkaði en í gildandi samningum en að lítil verðbólga auki líkur á hóflegum launabreytingum.
Mest lesið Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Viðskipti innlent Gengi Play í frjálsu falli Viðskipti innlent HBO Max streymisveitan komin til Íslands Viðskipti innlent Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play Viðskipti innlent Að líða ömurlega í andrúmslofti jákvæðrar sálfræði Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Orri til liðs við Íslandsbanka Viðskipti innlent Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Viðskipti innlent Búast við tveggja milljarða tapi Viðskipti innlent „Þær eru bara of dýrar“ Neytendur Fleiri fréttir Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun