Magnús Geir fór yfir fjárhagsstöðu RÚV með starfsmönnum Stefán Árni Pálsson skrifar 14. nóvember 2014 10:37 Magnús varpaði meðal annars upp glæru sem á voru útklippur úr dagblöðum og fór Magnús yfir fjölmiðlaumfjöllun gagnvart stofnuninni síðustu mánuði. vísir/stefán
Boðað var til starfsmannafundar meðan starfsmanna RÚV í Efstaleitinu í morgun. Fundurinn var stuttur og snarpur og fór Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, yfir fjárhagstöðuna hjá stofnuninni. Starfsmönnum var greint frá þeirri hagræðingu sem hefur átt sér stað innan RÚV. Einnig talaði Magnús um að enginn svör hefðu fengist frá ráðamönnum þjóðarinnar varðandi þá fjármunni sem stofnunin fær á næsta ári. Magnús varpaði meðal annars upp glæru á fundinum með fyrirsögninni „Mikil umræða“. Á glærunni voru útklippur úr dagblöðum og fór Magnús yfir fjölmiðlaumfjöllun gagnvart stofnuninni síðustu mánuði. Mikið hefur verið fjallað um rekstur RÚV í fjölmiðlum á undanförnum misserum en fjárhagsstaða Ríkisútvarpsins er erfið. Félagið er yfirskuldsett og nema skuldir RÚV 5,5 milljörðum króna, stærstur hluti vegna lífeyrissjóðsskuldbindinga félagsins. Í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun segir útvarpsstjórinn að á undanförnum árum hafi ríkið tekið til sín hluta af útvarpsgjaldinu á hverju ári og nýtt í óskyld verkefni þrátt fyrir óbreyttar lagakvaðir um víðtæka þjónustu og skuldbindingar RÚV. „Útvarpsgjaldið sem hver einstaklingur greiðir er sambærilegt að krónutölu við það sem þekkist hjá öðrum norrænum ríkisfjölmiðlum og nokkru lægra en hjá BBC og fleiri ríkisstöðvum í Evrópu. Stjórn RÚV hefur óskað eftir því að félagið fái útvarpsgjaldið óskert svo að tryggja megi áframhaldandi öflugt Ríkisútvarp, með sambærilegar skyldur og hlutverk og verið hefur.“ Magnús segir að óbreytt útvarpsgjald dugi til að standa undir öflugri dagskrá og nauðsynlegum úrbótum á dreifikerfi. Ekki sé þörf á að hækka gjaldið eða veita sérstök fjárframlög til RÚV.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira